Íþrótta- og æskulýðsráð

60. fundur 18. september 2014 kl. 08:15 - 11:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Kristinn Ingi Valsson Formaður
  • Jón Ingi Sveinsson Varaformaður
  • Íris Hauksdóttir Aðalmaður
  • Þórunn Andrésdóttir Aðalmaður
  • Andrea Ragúels Víðisdóttir Aðalmaður
  • Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
  • Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
Fundargerð ritaði: Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
Um að ræða sameiginlegan fund byggðarráðs og íþrótta- og æskulýðsráðs vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2015-2018.

1.Fjárhagsáætlun 2015;

Málsnúmer 201409008Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá stjórn Skíðafélags Dalvíkur, bréf dagsett í ágúst 2014, móttekið 1. september 2014, þar sem óskað er eftir samvinnu við Dalvíkurbyggð, vinnuskóla og alla þá sem vilja fólkvanginum vel til að gera stór átak í fegrun á aðkomunni að þessu andliti fólkvangsins.
Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar erindið og samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að ofangreint erindi verði áfram til umfjöllunar hjá umhverfisráði og umhverfis- og tæknisviði.

2.Fjárhagsáætlun 2015; beiðni um rekstrarstyrk 2015

Málsnúmer 201409012Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá stjórn Ungmennasambands Eyjafjarðar, bréf dagsett þann 1. september 2014, þar sem UMSE óskar eftir áframhaldandi rekstrarstyrk frá sveitarfélaginu vegna ársins 2015. Einnig er óskað eftir hækkun frá fyrra ári. Fram kemur að styrkurinn er nýttur til reksturs á skrifstofu UMSE.

Byggðarráð samþykkti á fundi sínum þann 04.09.2014 að fela formanni byggðarráðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að eiga fund með forsvarsmönnum UMSE fyrir næsta fund byggðarráðs.

Með fundarboði fylgdi minnisblað íþrótta- og æskulýðsfullrúa vegna fundar með fulltrúum UMSE þann 11.09.2014.

Til umræðu ofangreint.

Upplýst var á fundinum að gert er ráð fyrir 1,1 m.kr. styrk til UMSE í tillögu í fjárhagsáætlun 2015.

3.Fjárhagsáætlun 2015; endurnýjun á líkamsræktarstöð Íþróttamiðstöðvar

Málsnúmer 201408101Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Axel Snæ Jóni Jónssyni, rafbréf dagsett þann 29. ágúst 2014, þar sem lagt er til að endurnýja líkamsræktarstöðina á Dalvík þar sem tæki og lóð eru úr sér gengin.

Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar fyrir ábendingar. Á 59. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 2. september 2014 var kynnt tillaga að endurnýjunaráætlun búnaðar málaflokks 06, málsnúmer 201408069. Fram kemur að samkvæmt úttekt og endurnýjunaráætlun í líkamsrækt er heildarkostnaður við ný tæki í líkamsrækt um 25 m.kr. en gera má ráð fyrir að endingartími sé um 10 ár. Þar var óskað eftir að á áætlun íþróttamiðstöðvar verði kr. 2.500.000 árlega til endurnýjunar.

Til umræðu ofangreint.


Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar erindið en með vísan til ofangreindar bókunar þá er málið komið í ferli.
Lagt fram til kynningar.

4.Fjárhagsáætlun 2015; Möguleg ný staðsetning á nýjum Golfvelli GHD.

Málsnúmer 201409031Vakta málsnúmer

Guðmundur St. Jónsson vék af sameiginlegum fundi undir þessum lið kl. 8:58 vegna vanhæfis.

Tekið fyrir erindi frá formanni Golfklúbbsins Hamars, um mögulega nýja staðsetningu á nýjum golfvelli GHD. Fram kemur að verið er að vinna að grófri kostnaðaráætlun varðandi nýjan golfvöll á Dalvík og aðra áætlun um það hvað þyrfti að gera fyrir Arnarholtsvöll svo hann kæmist í gott ástand. Klúbburinn óskar því eftir að taka upp frekari umræður við nýtt byggðarráð Dalvíkurbyggðar þegar þau gögn liggja fyrir.

Byggðarráð hafði vísað ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs til umfjöllunar.

Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að formaður byggðarráðs, formaður íþrótta- og æskulýðsráðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fundi með forsvarsmönnum Golfklúbbsins Hamars og óski eftir nánari upplýsingum um kostnað vegna framkvæmda og reksturs.

5.Fjárhagsáætlun 2015; Ósk um endurskoðun á rekstrarstyrk frá Dalvikurbyggð til GHD.

Málsnúmer 201409030Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Golfklúbbnum Hamar, bréf dagsett þann 1. september 2014, þar sem óskað er endurskoðunar á rekstrarstyrk frá Dalvíkurbyggð til GHD.

Á fundinum kom fram að í gildi er 3ja ára samningur við Golfklúbbinn til loka árs 2015.

Byggðarráð hafði vísað ofangreindu erindi til umfjöllunar og afgreiðslu íþrótta- og æskulýðsráðs.

Ofangreint til umræðu.

Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að formaður byggðarráðs, formaður íþrótta- og æskulýðsráðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fundi með forsvarsmönnum Golfklúbbsins Hamars um ofangreint erindi.

6.Fjárhagsáætlun 2015; notkunargjald af íþróttamannvirkjum í sveitarfélaginu

Málsnúmer 201409013Vakta málsnúmer

Guðmundur St. Jónsson kom inn á sameiginglegan fund undir þessum lið að nýju kl. 09:27.

Tekið fyrir erindi frá Sveini Arndal Torfasyni, bréf dagsett þann 1. september 2014, þar sem lagt er til að hugað verði að því að "Fríkort" fyrir börn í Íþróttamiðstöðina dugi sem aðgangskort í önnur íþróttamannvirki í sveitarfélaginu, s.s. golfvöll, skíðasvæði, innahússgolfvöll o.s.frv.

Byggðarráð hafði vísað ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs til umfjöllunar.

Ofangreint til umræðu.

Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar erindið en telur að sveitarfélagið sé að bregðast að hluta til við með hvatagreiðslum í gegnum ÆskuRækt.

7.Fjárhagsáætlun 2015; Skíðamót Íslands 2015.

Málsnúmer 201408102Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá mótanefnd Skíðafélags Dalvíkur, bréf dagsett þann 31. ágúst 2014, þar sem óskað er eftir kr. 500.000 styrk upp í kostnað við Skíðamót Íslands sem haldið verður dagana 20. - 22. mars 2015 á Dalvík og í Ólafsfirði.

Byggðarráð hefur óskað eftir frekari gögnum og upplýsingum um ofangreint erindi í samræmi við reglur sveitarfélagsins almennt um umsóknir og vísað erindinu til íþrótta- og æskulýðsráðs til umfjöllunar þegar umbeðin gögn liggja fyrir.

Upplýst var á fundinum að frekari gögn hafa ekki borist.

Ofangreint til umræðu.

Til umræðu einnig styrktarsamningur við Skíðafélagið í heild sinni sem og viðaukasamningur sem samþykktur var á fundi byggðarráðs þann 31. júlí s.l.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að hafna erindinu.

8.Fjárhagsáætlun 2015; sparkvöllur í Árskógi

Málsnúmer 201409003Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá stjórn Ungmennafélagsins Reyni, rafbréf dagsett þann 31. ágúst 2014, þar sem fram kemur að á aðalfundi félagsins sem haldinn var 27. apríl s.l. var samþykkt ályktun þess efnis að hvetja Dalvíkurbyggð til að koma upp sparkvelli við Árskóg árið 2015.

Byggðarráð hefur vísað ofangreindu erindi til kostnaðargreiningar hjá umhverfis- og tæknisviði og til umfjöllunar í íþrótta- og æskulýðsráði þegar þær upplýsingar liggja fyrir.

Samkvæmt upplýsingum frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs myndi völlur sambærilegur við Dalvíkurskóla kosta um 20,0 m.kr. án upphitunar og reksturs.

Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að fá nánari upplýsingar frá Ungmennafélaginu Reyni um útfærslu á verkefninu og felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að hafa samband við félagið varðandi ofangreint.

9.Fjárhagsáætlun 2015; Strandblakvöllur

Málsnúmer 201409010Vakta málsnúmer

Hildur Ösp Gylfadóttir og Kristinn Ingi Valsson viku af fundi undir þessum lið kl. 10:39 vegna vanhæfis.

Tekið fyrir erindi frá stjórn Blakfélagsins Rimar, bréf dagsett þann 31. ágúst 2014, þar sem, í ljósi ört vaxandi áhuga á strandblaki, óskar Blakfélagið Rimar eftir styrk til að útbúa tvo samliggjandi blakvelli í Dalvíkurbyggð. Meðfylgjandi er kostnaðaráætlun fyrir verkið kr. 3.902.216 vegna útlagðs kostnaðar og eigið framlag vegna jarðvegsvinnu kr. 1.200.000. Sótt er um styrk að upphæð kr. 3.902.216.

Byggðarráð hafði vísað ofangreindu erindi til umfjöllunar í íþrótta- og æskulýðsráði.

Til umræðu ofangreint.

Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að leggja til að við gerð starfs- og fjárhagsáætlun 2015-2018 að hugað verði að því að gera ráð fyrir 1,0 m.k. styrk árið 2015 og 1,0 m.kr. styrk árið 2016.

Íþrótta- og æskulýðsráð tekur undir samþykkt Byggðráðs um að fela umhverfisráði að fjalla um tillögur blakfélagsins Rima um staðsetningu á strandblakvöllum.

10.Fjárhagsáætlun 2015; svæði fyrir félagið.

Málsnúmer 201409002Vakta málsnúmer

Hildur Ösp og Kristinn Ingi Valsson komu inn á fundinn að nýju undir þessum lið kl. 11:01

Tekið fyrir erindi frá Mótorsportfélagi Dalvíkur, rafbréf dagsett þann 31. ágúst 2014, þar sem vísað er til meðfylgjandi samantektar um starfsemi Mótorsportfélags Dalvíkur og þær umsóknir sem eru núna í gangi. Félagið stefnir að því að sækja um styrk hjá sveitarfélaginu þegar öll leyfi eru komin í höfn og eins þegar samkomulag verður um úthlutað svæði til mótorsports. Fram kemur að stjórn félagsins á fund með umhverfisráði n.k. föstudag.

Byggðarráð hafði vísað ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs til umfjöllunar.

Á 254. fundi umhverfisráðs þann 5. september 2014 var eftirfarandi bókað:
5. 201408011 - Innkomið erindi vegna æfingasvæðis fyrir mótorsport.
Til umræðu umsókn mótorsportfélags Dalvíkur um nýtt svæði. Á fundinn mæta forsvarsmenn félagsins.
Umhverfisráð tekur jákvætt í nýja staðsetningu, þó með smávægilegri tilfærslu. Ráðið leggur til að hugmyndin verði kynnt hagsmunaðilum og nágrönnum svæðisins.

Undir þessum lið mættu fjórir forsvarsmenn félagsins.

Lagt fram til kynningar en málið er í vinnslu hjá umhverfisráði.

11.Styrkur vegna ársþings UMSE 2014

Málsnúmer 201409072Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá UMSE, dagsett þann 4. september 2014, þar sem fram kemur að sú hefð hefur skapast að sveitarfélögin á starfssvæði UMSE hafi styrkt framkvæmd á ársþingi UMSE, þegar þingið fer fram innan hvers sveitarfélags.

Fram kemur að þingið var haldið að Rimum í Svarfaðardal fimmtudaginn 13. mars s.l. í umsjón Ungmennafélagsins Þorsteins Svörfuðar. UMSE óskar eftir styrkveitingu vegna þinghaldsins vegna kostnaðar fyrir veitingum og húsaleigu, alls kr. 109.100.

Lýsing á kjöri íþróttamanns UMSE fór að þessu sinni fram í Félagsheimilinu Árskógi og var kaffisamsæti í umsjón Kvenfélagsins Hvatar.

UMSE óskar eftir styrkveitingu vegna þessa vegna kostnaðar fyrir veitingum og húsaleigu.


Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi og bendir á að erindi um styrki frá sveitarfélaginu þurfa að koma áður en viðburðir eru haldnir.

12.Framlenging á leigusamningi vegna Rima

Málsnúmer 201401004Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi gildandi samningur vegna Rima ásamt framlengingu á leigusamningi.

Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að vísa ofangreindu máli til fyrirhugaðs fundar formanns byggðarráðs, sveitarstjóra og umsjónarmanns fasteigna með forsvarsmönnum Húsabakka ehf.

13.Erindi um uppbyggingu hjólabrettaaðstöðu

Málsnúmer 201409021Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu á fund íþrótta- og æskulýðsráðs kjörnir fulltrúar úr Byggðaráði; Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður, Kristján Guðmundsson varaformaður og Guðmundur St. Jónsson aðalmaður, Bjarni Theódór Bjarnason sveitarstjóri og Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri.

Tekið fyrir erindi frá Viktori Huga Júlíussyni og fleirum, bréf dagsett þann 24. ágúst 2014, þar sem þess er farið á leit að kannaður verði möguleiki á uppsetningu hjólabrettaaðstöðu í Dalvíkurbyggð.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umsagnar ungmennaráðs og málið verði svo aftur til umfjöllunar ráðsins eftir að umsögn hefur borist.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Nefndarmenn
  • Kristinn Ingi Valsson Formaður
  • Jón Ingi Sveinsson Varaformaður
  • Íris Hauksdóttir Aðalmaður
  • Þórunn Andrésdóttir Aðalmaður
  • Andrea Ragúels Víðisdóttir Aðalmaður
  • Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
  • Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
Fundargerð ritaði: Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi