Íþrótta- og æskulýðsráð

185. fundur 03. mars 2026 kl. 08:15 - 11:15 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Elsa Hlín Einarsdóttir formaður
  • Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
  • Elísa Rún Gunnlaugsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
  • Jón Stefán Jónsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Jón Stefán Jónsson Íþróttafulltrúi
Dagskrá
Bjarni Jóhann Valdimarsson, formaður GHD sat fundinn undir þessum lið.

1.Golfklúbburinn Hamar - vallarstjórirekstrarstjóri

Málsnúmer 202602143Vakta málsnúmer

Bjarni Jóhann Valdimarsson, formaður GHD fer yfir ósk Golfklúbbsins Hamars um styrk til ráðningar Vallarstjóra/rekstrarstjóra fyrir félagið.
Íþrótta - og æskulýðsráð þakkar Bjarna Valdimarssyni formanni fyrir greinargott erindi. Íþróttafulltrúa falið að afla frekari gagna fyrir næsta fund hjá ráðinu.
Bjarni Jóhann Valdimarsson yfirgaf fundinn kl.8.55

2.Mánaðarlegar skýrslur 2026

Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer

Íþróttafulltrúi fer yfir fjárhagsstöðu á málaflokki 06.
Lagt fram til kynningar

3.Framtíðarhugmyndir frístundar og félagsmiðstöðvar

Málsnúmer 202602043Vakta málsnúmer

Máli frestað

4.Þátttaka barna og unglinga í íþrótta og tómstundastarfi í Dalvíkurbyggð

Málsnúmer 202602157Vakta málsnúmer

Íþróttafulltrúi fer yfir stöðuna á þátttöku barna- og unglinga í almennu íþrótta og tómstundastarfi í Dalvíkurbyggð.
Íþrótta - og æskulýðsráð þakkar íþróttafulltrúa fyrir góðar og mikilvægar upplýsingar.
Sævaldur Jens Gunnarsson og Lilja Guðnadóttir úr stjórn Hestamannafélagsins Hrings sátu fundinn undir þessum lið.

5.Samningur um byggingu reiðhallar

Málsnúmer 202509144Vakta málsnúmer

Hestamannafélagið Hringur hefur óskað eftir að samningur um byggingu nýrrar reiðhallar félagsins við Dalvíkurbyggð verði tekinn upp og styrktarupphæðir endurskoðaðar. Fyrirliggjandi kostnaðaráætlun við framvkæmdina frá félaginu.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fjórum atkvæðum, uppfærðan samning sveitarfélagsins við Hestamannafélagið Hring.
Sævaldur og Lilja yfirgáfu fundinn kl.9.50
Gísli Bjarnsson, sviðsstjóri fræðslusviðs, yfirgaf fundinn kl.10.15

6.Vinnuskóli Dalvíkurbyggðar - staða og framtíð

Málsnúmer 202401136Vakta málsnúmer

Umræður um fyrirkomulag vinnuskóla 2026
Lagt fram til kynningar.

7.Gull- silfur- og bronsmerki Dalvíkurbyggðar fyrir starf í þágu íþrótta

Málsnúmer 202601078Vakta málsnúmer

Íþróttafulltrúi leggur til upptöku á heiðursviðurkenningum fyrir störf í þágu íþrótta á vegum sveitarfélagsins.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fjórum atkvæðum gull-, silfur- og bronsmerki Dalvíkurbyggðar í þágu íþrótta í sveitarfélaginu.

8.Íþróttmaður Dalvíkurbyggðar - reglur og uppfærsla þeirra

Málsnúmer 202601080Vakta málsnúmer

Íþróttafulltrúi leggur til uppfærslu á reglum um kjör íþróttamann Dalvíkurbyggðar. Megin breytingin er tímasetning kosningar og verðlaunahátíðarinnar sjálfrar.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fjórum atkvæðum uppfærðar reglur um Íþróttamann Dalvíkurbyggðar.

9.Ársskýrsla og ársreikningur Sundfélagsins Ránar 2025

Málsnúmer 202602140Vakta málsnúmer

Ársskýrsla og ársreikningar Sundfélagsins Ránar 2025 lagðir fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar. Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar forsvarsmönnum Sundfélagsins Ránar greinargóða ársskýrslu.

10.Beiðni um styrk til kaupa á loftdýnu

Málsnúmer 202602154Vakta málsnúmer

Fimleikadeild UMFS óskar eftir styrk til kaupa á loftdýnu til notkunar í starfi deildarinnar.
Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþróttafulltrúa að afla frekari gagna.

11.Skólahreysti í 20 ár - ósk um styrk

Málsnúmer 202512029Vakta málsnúmer

Forsvarsmenn Skólahreysti óska eftir 250.000 kr styrk til starfseminnar.
Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþróttafulltrúa að afla frekari gagna um málið.

Fundi slitið - kl. 11:15.

Nefndarmenn
  • Elsa Hlín Einarsdóttir formaður
  • Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
  • Elísa Rún Gunnlaugsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
  • Jón Stefán Jónsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Jón Stefán Jónsson Íþróttafulltrúi