Skólahreysti í 20 ár - ósk um styrk

Málsnúmer 202512029

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð - 181. fundur - 15.01.2026

Iþróttafulltrúa er falið að afla frekari upplýsingar um styrkbeiðnina hjá forsvarsmönnum Hreystismiðjunnar.

Fræðsluráð - 313. fundur - 11.02.2026

Tekið fyrir erindi frá Hreysti Smiðjunni ehf. dags. í desember 2025, þar sem óskað er eftir styrk að fjárhæð kr. 250.000.

Erindið var tekið fyrir á 181.fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 15.janúar sl. og var eftirfarandi bókað:
Íþróttafulltrúa er falið að afla frekari upplýsingar um styrkbeiðnina hjá forsvarsmönnum Hreystismiðjunnar.
Afgreiðslu er frestað þar sem málið er í vinnslu hjá íþrótta- og æskulýðsráði.
Samþykkt með 4 atkvæðum.

Benedikt Snær Magnússon greiðir atkvæði á móti þar sem hann hefði viljað afgreiða málið á þessum fundi.

Íþrótta- og æskulýðsráð - 185. fundur - 03.03.2026

Forsvarsmenn Skólahreysti óska eftir 250.000 kr styrk til starfseminnar.
Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþróttafulltrúa að afla frekari gagna um málið.