Íþrótta- og æskulýðsráð

184. fundur 03. febrúar 2026 kl. 08:15 - 11:15 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Elsa Hlín Einarsdóttir formaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir varaformaður
  • Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
  • Elísa Rún Gunnlaugsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jón Stefán Jónsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Jón Stefán Jónsson Íþróttafulltrúi
Dagskrá
Jóhann Kristinsson og Ingvi Ingvason komu á fundinn fyrir hönd BUR knattspyrnudeildar UMFS.

1.Framtíðarsýn íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð

Málsnúmer 202510146Vakta málsnúmer

Forsvarsfólk Barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar UMFS koma á fund ráðsins og gera grein fyrir stöðu starfsins og framtíðaráætlunum.
Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar forsvarsmönnum BUR UMFS fyrir góðar umræður.
Jóhann og Ingvi yfirgáfu fundinn kl.09.00

2.Uppfærsla á reglum afreks- og styrktarsjóðs

Málsnúmer 202512008Vakta málsnúmer

Íþróttafulltrúi leggur til uppfærslu á reglum afreks- og styrktarsjóðs Dalvíkurbyggðar.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með 5 atkvæðum, uppfærðar reglur Afreks- og styrktarsjóðs Dalvíkurbyggðar.

3.Framkvæmd hátíðarinnar Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202601077Vakta málsnúmer

Farið yfir hvernig til tókst við framkvæmd á hátíðinni, Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar og teknar ákvarðanir um hvernig haga skuli hátíðinni á næsta ári.
Lagt fram til kynningar

4.Gull- silfur- og bronsmerki Dalvíkurbyggðar fyrir starf í þágu íþrótta

Málsnúmer 202601078Vakta málsnúmer

Íþróttafulltrúi leggur til að tekið verði upp kerfi, líkt og þekkist víða, til að heiðra fólk innan íþróttahreyfingarinnar í Dalvíkurbyggð.
Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþróttafulltrúa að vinna að nánari útlistun reglna um heiðursmerki fyrir starf í þágu íþrótta í sveitarfélaginu.

5.Samningur um byggingu reiðhallar

Málsnúmer 202509144Vakta málsnúmer

Lögð fram til skoðunar endurskoðuð og endurmetin drög að samningi um reiðhöll fyrir Hestamannafélagið Hring.
Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþróttafulltrúa að vinna málið nánar í samstarfi við stjórn Hrings.

Fundi slitið - kl. 11:15.

Nefndarmenn
  • Elsa Hlín Einarsdóttir formaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir varaformaður
  • Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
  • Elísa Rún Gunnlaugsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jón Stefán Jónsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Jón Stefán Jónsson Íþróttafulltrúi