Íþrótta- og æskulýðsráð

175. fundur 15. júlí 2025 kl. 08:15 - 10:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Elsa Hlín Einarsdóttir formaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir varaformaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
  • Jóhann Már Kristinsson varamaður
  • Magni Þór Óskarsson varamaður
Starfsmenn
  • Jón Stefán Jónsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Jón Stefán Jónsson Íþróttafulltrúi
Dagskrá

1.Samstarf um gagnkvæma nýtingu sund- og líkamsræktarkorta Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar

Málsnúmer 202506100Vakta málsnúmer

Íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar og forstöðumaður íþróttamannvirkja í Fjallabyggð leggja til ótímabundið samstarf sveitafélagana sem feli í sér að korthafar á hvorum stað fyrir sig hafi aðgang að hinum staðnum án auka gjalds.
Íþrótta- og æskulýðsráð hafnar erindinu með 5 atkvæðum. Ráðið leggur til að samstarf um gagnkvæma nýtingu sundkorta verði tekið upp. Líkamsræktarkort falli ekki undir gildissviðið.

2.Umsókn um hækkun framkvæmdastyrks vegna troðarahúss

Málsnúmer 202506038Vakta málsnúmer

Skíðafélag Dalvíkur óskar eftir á bilinu 25-46 milljónum króna til að ljúka við framkvæmdir á Troðarahúsi/áhaldageymslu á svæðinu. Kostnaður við verkið er kominn fram úr þeirri áætlun sem upphaflega var lagt upp með af mismunandi ástæðum.
Í ljósi þess að óskað var eftir kr.46.000.000 til að fullklára bygginguna leggur íþrótta- og æskulýðsráð til að Skíðafélagi Dalvíkur verði veittur framkvæmdastyrkur að upphæð kr. 23.000.000. Með þessari upphæð verði verkið fullklárað með mótframlagi skíðafélagsins upp á sömu upphæð.
Upphæðin verði greidd út í samræmi við framvindu verksins.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

3.Umsókn um hækkun á rekstrarstyrk fyrir árið 2025

Málsnúmer 202506037Vakta málsnúmer

Skíðafélag Dalvíkur óskar eftir 10 milljónum króna í hækkun á rekstrarstyrk á árinu 2025 vegna erfiðrar afkomu eftir veturinn. Reksturinn var þungur þar sem veðurfarsaðstæður reyndust með eindæmum erfiðar með tilliti til opnunardaga á skíðasvæðinu.
Íþrótta- og æskulýðsráð hafnar erindinu með fimm atkvæðum. Ráðið leggur til að kr.10.000.000 verði fyrirframgreiddar af rekstrarstyrk ársins 2026. Brýnt er að skíðafélagið yfirfari rekstur félagsins og leiðir til hagræðingar.

4.Aðalstjórn UMFS óskar eftir styrk til ráðningar starfsmanns

Málsnúmer 202507006Vakta málsnúmer

Aðalstjórn UMFS óskar eftir fimm milljón króna styrk á árinu 2025 og til lengri tíma vegna ráðningar starfsmanns í 50% stöðu við félagið í heild sinni. Starfsmaður yrði einnig í 50% vinnu hjá UMSE og hefði að megninu til aðstöðu á Dalvík en hefði einnig viðverðuskyldu á Akureyri.
Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar aðalstjórn UMFS fyrir erindið. Ráðið óskar eftir því að fulltrúar UMSE og aðalstjórnar UMFS komi á næsta fund ráðsins og kynni hugmyndirnar um starfið ítarlega fyrir ráðinu.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Nefndarmenn
  • Elsa Hlín Einarsdóttir formaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir varaformaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
  • Jóhann Már Kristinsson varamaður
  • Magni Þór Óskarsson varamaður
Starfsmenn
  • Jón Stefán Jónsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Jón Stefán Jónsson Íþróttafulltrúi