Málsnúmer 202401136Vakta málsnúmer
Á 388. fundi sveitarstjórnar þann 17. mars sl. var samþykkt samhljóða að vísa tillögu Kristins Boga Antonssonar um að auglýst verði nokkur almenn sumarstörf fyrir 18 ára og eldri hjá Eigna- og framkvæmdadeild í sumar til umræðu í framkvæmdaráði.
Á 1. fundi framkvæmdaráðs þann 15. apríl sl. var samþykkt að auglýsa störf fyrir 18 ára ungmenni í sumar laus til umsóknar skv. minnisblaði starfsmanna. Umrædd störf yrðu þá auglýst eins og störf fyrir 17 ára ungmenni og yrðu starfsmenn hluti af vinnuskólanum.
Á 389. fundi sveitarstjórnar þann 21. apríl sl. var samþykkt að beina því til framkvæmdaráðs að taka til skoðunar hvort hægt sé að bæta 19 ára ungmennum við og auglýsa laus störf fyrir þau líka.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.