Hríshöfði - umsókn um byggingarleyfi fyrir tengivirki

Málsnúmer 202604064

Vakta málsnúmer

Framkvæmdaráð - 2. fundur - 28.04.2026

Erindi dagsett 15.apríl 2026 þar sem Landsnet sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við spennistöð í Hríshöfða.
Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Meðfylgjandi eru aðaluppdrættir.
Framkvæmdaráð samþykkir að áformin verði grenndarkynnt skv. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Höfða lóðar (L151842), Árgerðis og Friðlandsnefnd Svarfdæla.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.