Skáldalækur syðri - fyrirspurn um lóð fyrir frístundahús

Málsnúmer 202604080

Vakta málsnúmer

Framkvæmdaráð - 2. fundur - 28.04.2026

Erindi dagsett 16.apríl 2026 þar sem Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir sækir um leyfi fyrir byggingu frístundahúss í landi Skáldalækjar syðri.
Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði L1 í gildandi Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020.
Framkvæmdaráð samþykkir að að heimila byggingu eins frístundahúss á jörðinni.
Áformin kalla á breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og er framhaldi málsins vísað til yfirstandandi vinnu við nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.