Fjölskylduráð

1. fundur 14. apríl 2026 kl. 08:15 - 10:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson varaformaður
  • Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
  • Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
Aðrir sem sitja fund: Elvý G. Hreinsdóttir, Ingigerður Lilja Jónsdóttir, Matthildur Matthíasdóttir, Katla Ketilsdóttir, Ágústa Kristín Bjarnadóttir og Una Dan Pálmadóttir.

1.Erindisbréf og trúnaðaryfirlýsing fjölskylduráðs

Málsnúmer 202604025Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindisbréf fjölskylduráðs og trúnaðaryfirlýsing fjölskylduráðs.
Fjölskylduráð gerir ekki athugasemdir við Erindisbréf fjölskylduráðs og skrifar jafnframt undir trúnaðaryfirlýsingu.

2.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202604026Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir breytingar á starfsmannahaldi á Krílakoti.
Bókað í trúnaðarmálabók

3.Hvetjum til sumarstarfa fyrir 16-17 ára ungmenni

Málsnúmer 202604019Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags. 08.04.2026 frá aðgerðarhóp vegna ofbeldis meðal og gegn börnum. Þar er verið að beina athygli ráðamanna sveitarfélaga á mikilvægi þess að bjóða upp á sumarstörf fyrir 16-17 ára ungmenni, sérstaklega þau sem standa höllum fæti. Slík störf geta skipt sköpum fyrir unga seinstalinga sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaðnum og byggja upp tengsl við samfélagið.
Skólafólk kom inn á fund kl. 08:30

4.Skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2026 - 2027

Málsnúmer 202603039Vakta málsnúmer

Tekin fyrir skóladagatöl leik - og grunnskóla fyrir skólaárið 2026 - 2027.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum skóladagatal Dalvíkurskóla fyrir skólaárið 2026 - 2027.

Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum skóladagatal Krílakots með þeirri breytingu að dagarnir milli jóla og nýs árs verði skráningadagar.

5.Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar - Endurskoðun 2026

Málsnúmer 202501029Vakta málsnúmer

Til umsagnar drög að uppfærðri Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar. Á 41. fundi Umhverfis- og dreifbýlisráðs, þann 13. mars sl., var drögunum vísað til umsagnar í öðrum fagráðum sveitarfélagsins.
Fjölskylduráð vekur athygli á að gott væri að bæta við gangbraut á Böggvisbraut milli Hólavegar og Mímisvegar.
Skólafólk fór af fundi kl. 09:00

6.Umsókn um styrk- Sterkari út í lífið

Málsnúmer 202603057Vakta málsnúmer

Tekin fyrir tölvupóstur dags. 07.03.2026 frá Sálfræðistofunni en um er að ræða hóp sálfræðinga sem leita eftir styrkjum vegna verkefnisins Sterkari út í lífið. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa foreldrum ókeypis efni sem auðveldar þeim að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna. Verkefnið varðar forvarnir, æskulýðsmál, lýðheilsu, sjálfsmynd barna og unglinga sem og valdeflingu foreldra.
Fjölskylduráð hafnar erindinu með fimm atkvæðum.

7.Breyting á verklagi vegna brottfalls laga um Heyrnar- og talmeinastöð

Málsnúmer 202603046Vakta málsnúmer

Tekið fyrir bréf frá Heilbrigðisráðuneyti dags. 05.03. Þar sem verið er að leggja niður Heyrnar - og talmeinastöð 01. maí.
Lagt fram til kynningar

8.Hvetjum til sumarstarfa fyrir 16-17 ára ungmenni - aðgerðahópur vegna ofbeldis meðal barna 2025-2026

Málsnúmer 202604017Vakta málsnúmer

Tekið fyrir rafrænn póstur frá aðgerðahóp vegna ofbeldis meðal barna 2025-2026 dags. 07.04. 2026. Þar sem að sveitarfélög eru hvött til að bjóða 17 ára ungmennum atvinnu í sumar.
Lagt fram til kynningar.

9.Tengiráðgjafar

Málsnúmer 202512037Vakta málsnúmer

Tekið var fyrir til kynningar staða tengiráðgjafa sem er hluti móttökuteymis Gott að eldast.
Bjarni Jóhann Valdimarsson,formaður GHD, kom inn á fund kl.09:15

10.Golfklúbburinn Hamar - vallarstjóri - rekstrarstjóri

Málsnúmer 202602143Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Golfklúppnum Hamri. Varðandi ráðningu á vallarstjóra- rekstrarstjóra.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita GHD 3.000.000 kr. Íþróttafulltrúa falið að óska eftir viðauka til Byggðaráðs og að endurskoða rekstrarsamning GHD eftir sumarið.
Bjarni Jóhann Valdimarsson,formaður GHD, fór af fundi kl. 09:35

11.Beiðni um styrk til kaupa á loftdýnu

Málsnúmer 202602154Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi fr fimleikadeild UMFS. Deildin óskar eftir styrk í aðstöðu deildarinnar.
Fjölskylduráð felur íþróttafulltrúa að afla frekari gagna og mun ráðið taka málið fyrir á næsta fundi.

12.Landsmót 50 , framkvæmt af UMSE

Málsnúmer 202603043Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá UMFÍ 50 dags.01.03.2026.
Máli frestað til næsta fundar.

13.Styrkbeiðni frá Ferðafélagi Svarfdæla

Málsnúmer 202603164Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Ferðafélagi svarfdæla.
Frestað til næsta fundar hjá Fjölskylduráð.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Nefndarmenn
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson varaformaður
  • Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
  • Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.