Byggðaráð

865. fundur 26. apríl 2018 kl. 13:00 - 14:38 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
  • Kristján Guðmundsson Varaformaður
  • Valdís Guðbrandsdóttir Varamaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Guðmundur St. Jónsson boðaði forföll og varamaður hans, Valdís Guðbrandsdóttir, mætti í hans stað.

1.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201711054Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kom á fundinn kl. 13:00 undir þessum lið.

Kristján Guðmundsson kom á fundinn undir þessum lið kl. 13:28.

Börkur Þór vék af fundi kl. 13:40.

2.Frá Hjörleifi Hjartarsyni; Hljóðleiðsögn um Dalvíkurbyggð - beiðni um styrk

Málsnúmer 201804081Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Hjörleifi Hjartarsyni, dagsett þann 18, apríl 2018, sbr. rafpóstur, þar sem fram kemur að Hjörleifur fékk þann 1. febrúar s.l. kr. 1.000.000 styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands til að búa til hljóðleiðsögn (app) um Dalvíkurbyggð. Áætlaður kostnaður við verkið var um kr. 3.000.000. Erindi þessa bréf er að bjóða Dalvíkurbyggð þátttöku í verkefninu þannig að sveitarfélagið kosti tæknivinnu og eigi í staðinn appið og geti unnið með það áfram.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar í atvinnumála- og kynningarráði með fyrirvara um að frekari upplýsingar og gögn berist, m.a. umsókn verkefnisins til Uppbyggingarsjóðs Norðurlands.

3.Frá Ragnari Þ. Þórodssyni; Sýning á verkum Brimars og útgáfuteiti á "Demöntum Dalvíkur."

Málsnúmer 201804094Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Ragnari Þ. Þóroddssyni, rafbréf dagsett þann 21. apríl 2018, þar sem Ragnar fer þess á leit við Dalvíkurbyggð að fá lánað/ leigt Gamla skólahúsið við Skíðabraut undir heildaryfirlitssýningu á verkum JSBrimars "Demöntum Dalvíkur", frá 1. júní 2018 og fram í miðjan ágúst 2018. Sýningin yrði opnuð á afmælisdegi Brimars þann 13. júní.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela umsjónarmanni fasteigna að gera drög að leigusamningi um ofangreint í samræmi við umræður á fundinum.

4.Frá Skákfélaginu Hrókurinn; Tuttugu ára afmæli Hróksins, heimsókn í öll sveitarfélög landsins

Málsnúmer 201804079Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá skákfélaginu Hróknum, dagsett þann 18. apríl 2018 þar sem fram kemur að félagið fagnar 20 ára afmæli á árinu 2018 með margvíslegum hætti. Í tilefni af afmælinu og heimsóknum í öll sveitarfélög landsis 2018 biður félagið um samvinnu og stuðning Dalvíkurbyggðar, en heimsóknir í sveitarfélög eru óháð afgreiðslu erindisins um stuðning.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum framlag að upphæð kr. 25.000, vísað á lið 21010-4915. Byggðaráð býður skákfélagið Hrókinn velkomið til Dalvíkurbyggðar.

5.Samningur um innheimtu, endurnýjun við Motus

Málsnúmer 201706141Vakta málsnúmer

Á 827. fundi byggðaráðs þann 20. júlí 2017 var eftirfarandi bókað:
"Til umræðu endurnýjun á samningi við Motus um innheimtuþjónustu. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leitað verði samninga við Motus miðað við umræður á fundinum. "

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að samningi við Motus um innheimtuþjónustu. Samningstíminn eru 3 ár með 6 mánaða uppsagnarfresti á samningstíma. Ef samningi er ekki sagt upp framlengist hann um 1 ár í senn en að hámarki í 6 ár samfellt frá upphaf samningstíma.
Samningurinn er að hluta til trúnaðarmál.

Til umræðu ofangreint.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samning og vísar honum til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

6.Innkaupareglur, endurskoðun skv. nýjum lögum - tillaga að 3ja manna vinnuhópi

Málsnúmer 201703055Vakta málsnúmer

Á 864. fundi byggðaráðs þann 18. apríl 2018 var eftirfarandi bókað:

"Ný lög um opinber innkaup tóku gildi þann 29. október 2016. Í 123. gr. eru þó ákvæði um gildistöku einstakra ákvæða. Til umræðu myndun vinnuhóps sem hafi það hlutverk að yfirfara og endurskoða innkaupareglur Dalvíkurbyggðar með ný lög til hliðsjónar og samhliða þeirri yfirferð verði farið yfir fyrirkomulag innkaupa hjá sveitarfélaginu og vinnuhópurinn komi með tillögur að breytingum, þar sem og/eða ef við á. Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir með 2 atkvæðum að óska eftir tilnefningum frá framkvæmdastjórn í 3 manna vinnuhóp. "

Framkvæmdastjórn fjallaði um ofangreint á fundi sínum þann 23. apríl s.l. og tillaga kom um eftirfarandi aðila í vinnuhópinn:


Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs.
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Þorsteinn K. Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu um skipun vinnuhópsins.

7.Frá Þjóðskrá Íslands; Upplýsingar vegna sveitarstjórnarkosninga 26. maí 2018

Málsnúmer 201804099Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá Þjóðskrá Íslands, dagsettur þann 23. apríl 2018, er varðar kjördeildarkerfi en laugardagurinn 5. maí 2018 er viðmiðunardagur kjörskrár vegna kosninga til sveitarstjórna.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að setja þær upplýsingar sem fram koma í rafpósti Þjóðskrá og eiga erindi við kjósendur á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.

8.Frá Markaðsstofu Norðurlands; Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands og vorráðsstefnan ?Flogið í rétta átt?

Málsnúmer 201804085Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur dagsettur þann 19. apríl 2018 frá Markaðsstofu Norðurlands þar sem fram kemur að fimmtudaginn 3. maí n.k. verður aðalfundur MN haldinn á Hótel Kea á Akureyri. Sama dag eftir hádegi er vorráðstefna sem MN og Flugklasinn Air 66N standa fyrir og ber hún yfirskriftina "Flogið í rétt átt?".
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að sækja aðalfundinn og vorráðstefnuna fyrir hönd Dalvíkurbyggðar, ef hún hefur tök á.

9.Frá Símey; Ársfundur Símeyjar 2018

Málsnúmer 201804103Vakta málsnúmer

Tekið fyrir bréf frá stjórn SÍMEY, dagsett þann 18. apríl 2018, þar sem boðað er til ársfundar Símenntunarstöðvar Eyjafjarðar ári 2018 miðvikudaginn 2. maí kl. 14:00.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að sækja fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar, ef hann hefur tök á.

10.Frá Tækifæri; Aðalfundur Tækfæris hf. 2018

Málsnúmer 201804071Vakta málsnúmer

Tekið fyrir bréf frá Tækifæri hf., dagsett þann 16. apríl 2018, þar sem boðað er til aðalfundar mánudaginn 30. apríl n.k. kl. 14:00.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að sækja fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.

11.Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun 2018 ? 2024, 480. mál.

Málsnúmer 201804086Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 20. apríl 2018, þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024, 480. mál, eigi síðar en 4. maí n.k.



Lagt fram til kynningar.

12.Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um Póst- og fjarskiptastofnun o.fl. (gjaldtaka fyrir tíðnir og alþjónusta), 454. mál

Málsnúmer 201804087Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 20. apríl 2018, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um Póst- og fjarskiptastofnun o.fl. (gjaldtaka fyrir tíðnir og alþjónusta), 454. mál, eigi síðar en 4. maí n.k.

Lagt fram til kynningar.

13.Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillöga til þingsályktunar um stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018 - 2029

Málsnúmer 201804088Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 20. apríl 2018, þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018 - 2029, eigi síðar en 4. maí n.k.




Lagt fram til kynningar.

14.Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða, 425. mál.

Málsnúmer 201804089Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 20. apríl 2018, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða, 425. mál, eigi síðar en 4. maí n.k.
Lagt fram til kynningar.

15.Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum (EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.), 467. mál.

Málsnúmer 201804093Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur dagsettur þann 20. apríl 2018 þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum (EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.), 467. mál, eigi síðar en 4. maí n.k.



Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:38.

Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
  • Kristján Guðmundsson Varaformaður
  • Valdís Guðbrandsdóttir Varamaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs