Frá Skákfélaginu Hrókurinn; Tuttugu ára afmæli Hróksins, heimsókn í öll sveitarfélög landsins

Málsnúmer 201804079

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 865. fundur - 26.04.2018

Tekið fyrir erindi frá skákfélaginu Hróknum, dagsett þann 18. apríl 2018 þar sem fram kemur að félagið fagnar 20 ára afmæli á árinu 2018 með margvíslegum hætti. Í tilefni af afmælinu og heimsóknum í öll sveitarfélög landsis 2018 biður félagið um samvinnu og stuðning Dalvíkurbyggðar, en heimsóknir í sveitarfélög eru óháð afgreiðslu erindisins um stuðning.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum framlag að upphæð kr. 25.000, vísað á lið 21010-4915. Byggðaráð býður skákfélagið Hrókinn velkomið til Dalvíkurbyggðar.