Tónleikar - Duo Ultima

Tónleikar - Duo Ultima

Félagarnir í Duo Ultima hafa starfað saman í rúm 13 ár. Fyrsta samvinna þeirra Guidos og Aladárs var þegar Guido æfði konsert til að leika með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og keyrði frá Dalvík til Húsavíkur á æfingarnar með Aladár. Upp úr því tók við tónleikahald með frönskum verkum (Debussy, Schmitt ofl) og síðan tók hver ný áskorun við. Eftir að bæði Guido og Aladár fluttu á höfuðborgarsvæðið hefur samstarfið tekið á sig nýja víddir (landfræðilega og listræna vídd).

Nú hefur Duo Ultima (nýtt nafn) tekið upp þrjá geisladiska í samvinnu við upptökufyrirtækið Fermötu og er fyrsti diskurinn kominn út á vegum alþjóðlega útgáfufyrirtækisins Odradek Records. Titill fyrsta disksins er FLASHBACK “Horft til baka” evrópsk tónlist fyrir saxófón og píanó. Annar diskurinn inniheldur verk sem tengjast frönskum impressionisma og þriðji diskurinn er með nokkrum spriklandi og frísklegum virtúósaverkum. Duo Ultima vinnur að því að kynna metnaðarfullar og samtvinnandi efnisskrár fyrir klassískan saxófón og píanó í hæsta gæðaflokki. Duo Ultima fékk listamannalaun nýverið til tónleikahalds hér á landi og erlendis.

Guido Bäumer saxófónn er frá Norður-Þýskalandi. Guido hefur verið búsettur í Hafnarfirði í 10 ár. Hann stundaði tónlistarnám í Bremen í Þýskalandi þar sem hann lauk kennaraprófum á bæði saxófón og þverflautu. Framhaldsnám stundaði Guido við Tónlistarháskólann í Basel í Sviss þar sem hann lauk einleikaraprófi með hæstu einkunn og við Bowling Green State University í Ohio í Bandaríkjunum. Á Íslandi hefur Guido m.a. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput-hópnum, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands (einnig einleik í saxófónkonsert eftir J. Ibert) og haldið spunatónleika með tölvubreyttum hljóðum. Þá hefur Guido frumflutt verk eftir íslensk tónskáld. Guido er einnig félagi í Íslenska saxófónkvartettinum. Guido kennir við skólahljómsveitir á höfuborgarsvæðinu, við Tónlistarskólann í Kópavogi og er einnig stundakennari við Listaháskólann.

Aladár Rácz píanó er fæddur í Rúmeníu árið 1967. Hann stundaði fyrst nám í  píanóleik við Georges Enescu tónlistarskólann í Búkarest en síðan framhaldsnám við Tónlistarháskólana í Búkarest og Búdapest. Hann hefur leikið á tónleikum víðsvegar um heiminn, leikið inn á geisladiska og unnið til verðlauna fyrir píanóleik í alþjóðakeppnum. Á árunum 1999-2013 starfaði Aladár  sem tónlistarkennari við Tónlistarskóla Húsavíkur og lék með ýmsum kórum og söngvurum á Norður- og Austurlandi. Hann var einnig um tíma meðleikari framhaldsnemenda við Tónlistarskólann á Akureyri. Aladár hefur haldið nokkra einleikstónleika í Salnum í Kópavogi og hefur verið einleikari með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í píanókonserti nr.1 eftir Ludwig van Beethoven  og í píanókonserti nr.1 eftir Johannes Brahms. Aladár hefur verið búsettur á höfuðborgarsvæðinu frá sumri 2013 og kennir við Tónlistarskólann Do Re Mi, Söngskóla Sigurðar Demetz og er einnig meðleikari í Listaháskólanum.