Þvílík er ástin - Gestaboð Kristjönu

Þvílík er ástin. Gestaboð Kristjönu Arngrímsdóttur – gestur kvöldsins er Kristján Edelstein, gítarleikari.

Miðaverð: 3900. Takmarkaður sætafjöldi í boði vegna sóttvarnaviðmiða. 

Fyrir tuttugu árum gaf Kristjana Arngrímsdóttir út sinn fyrsta sólódisk “Þvílík er ástin” og fékk þar til liðs við sig frábæra tónlistamenn, þá Daníel Þorsteinsson píanóleikara, Jón Rafnsson kontrabassaleikara og Kristján Eldjárn Þórarinsson gítarleikara sem að auki sá um flestar útsetningar. Af þessu tilefni verður blásið til veislu og haldnir afmælis- og útgáfutónleikar í Bergi og um leið heiðruð minning Kristjáns Eldjárns Þórarinssonar. Tónleikarnir eru liður í tónleikaröðinni “Gestaboð Kristjönu” og gestur hennar verður gítarleikarinn Kristján Edelstein. Með þeim leika einnig áðurnefndir Daníel Þorsteinsson og Jón Rafnsson.