Miðvikudagsganga - Bæjarfjall - 3 skór

Miðvikudagsganga - Bæjarfjall - 3 skór

Ferðafélag Svarfdæla kynnir miðvikudagsgöngur í samstarfi við Heilsueflandi Dalvíkurbyggð.

Brottför kl. 16:30 frá Dalvíkurkirkju. Síðasta miðvikudagsganga sumarsins. Gengið upp í mynni Upsadals og þaðan eftir stikaðri leið upp Tungudalinn og norður á fjallsbrún og horft yfir Hólsdalinn. Þaðan út á Hólshyrnu og suður eftir frambrún Bæjarfjalls. Gengið niður Tungudal heim aftur. Gott útsýni yfir Dalvík og Eyjafjörðinn.

750 m. hækkun, 4-5 klst.