Kynningarfundur skipulagsmála vegna fyrirhugaðrar seiðaeldisstöðvar og landfyllingar á Árskógssandi
11. júl kl. 20:00
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi og drög að deiliskipulagi
Almennur kynningarfundur verður haldinn um breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna fyrirhugaðrar seiðaeldisstöðvar og landfyllingar á Árskógssandi. Einnig verða kynnt drög að deiliskipulagi athafnasvæðis á nýrri fyllingu við höfnina.
Fundurinn verður haldinn í félagsheimilinu Árskógi, Árskógsströnd, miðvikudaginn 11. júlí n.k. klukkan 20:00.
Börkur Þór Ottósson
Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs