Foreldramorgunn með Lilju Guðna

Foreldramorgunn með Lilju Guðna

Foreldramorgnar eru samverustundir hugsaðar sem vettvangur fyrir foreldra til að koma saman með börnin sín og njóta samvista með öðrum. Stefnt er að því að bjóða upp á fróðlegar kynningar á efni sem tengist barneignum, uppeldi og öðru sem getur verið nytsamlegt fyrir foreldra að kynna sér. Að samverustund lokinni er tilvalið að halda samtalinu áfram inni á bókasafni eða jafnvel fyrir framan á kaffihúsinu Basal+bistro.

Að þessu sinni fáum við til okkar Lilju Guðnadóttur hjúkrunarfræðing og ljósmóðir en að þessu sinni mun hún fræða nærstadda um brjóstagjöf og næringu barna. Frábær leið til að spyrja spurninga, kynnast nýjum hugmyndum og heyra um reynslu annarra.

Eins og alltaf hvetjum við foreldra eindregið til að koma með litlu krílin sín með sér og reynum við að hafa stundina gefandi og hlýlega.