Málsnúmer 202603106Vakta málsnúmer
Á 155.fundi veitu- og hafnaráðs var eftirfarandi bókað:
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela starfsmönnum hafnarinnar að koma með fyrir næsta fund ráðsins tillögur að afmörkun hafnarsvæða í Dalvíkurbyggð.
Innviðaráðuneytið hefur birt leiðbeiningar um afmörkun hafnarsvæða. Leiðbeiningunum er ætlað að tryggja samræmda afmörkun hafnarsvæða á Íslandi fyrir þá starfsemi sem þar fer fram.
Eigendur hafna skulu senda innviðaráðuneytinu endurskoðuð ákvæði í hafnarreglugerðum um stærð og takmörk hafnarsvæðis á sjó, með hliðsjón af nýjum viðmiðum, eigi síðar en 1. janúar 2027.
Fyrir fundinum liggja tillögur starfsmanna hafnanna að afmörkun hafnasvæða í Dalvíkurbyggð.