Ungmennaráð

49. fundur 16. apríl 2026 kl. 14:00 - 16:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Þröstur Leó Sigurðsson
  • Valgerður Fríður Lórenz Tryggvadóttir
  • Bríet Þóra Karlsdóttir
  • Viktor Logi Hjálmarsson
  • María Aðalrós Sigurðardóttir
Starfsmenn
  • Hera Margrét Guðmundsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Hera Margrét Guðmundsdóttir Frístundafulltrúi Dalvíkurbyggðar
Dagskrá

1.Ungmennaþing SSNE á Húsavík

Málsnúmer 202604068Vakta málsnúmer

Bríet Þóra og María Aðalrós kynntu fyrir nefndarmeðlimum ferð sína á Húsavík á Ungmennaþingi SSNE 2026.

Farið var yfir helstu niðurstöður þingsins, þar sem meðal annars kom fram að ungt fólk kallar eftir skýrara hlutverki ungmennaráða, auknum raunverulegum áhrifum í ákvarðanatöku sveitarfélaga og bættri eftirfylgni mála.

Ungmennaráð ræddi þessi atriði og lýsti yfir áhuga á að funda oftar og taka fleiri mál til umfjöllunar.

2.Berist til Ungmennaráðs

Málsnúmer 202602052Vakta málsnúmer

Ungmennaráð fagnar erindinu og hefur mikinn áhuga á að taka þátt í verkefninu þegar frekari útfærsla liggur fyrir.

3.UNICEF á Íslandi hefur opnað fyrir umsóknir um þátttöku í verkefninu Barnvæn sveitarfélög

Málsnúmer 202509009Vakta málsnúmer

Ungmennaráð fagnar erindinu um þátttöku í verkefninu Barnvænt sveitarfélag og að málið hafi verið lagt fyrir ráðið.

Ungmennaráð lýsir fullum stuðningi við að Dalvíkurbyggð innleiði verkefnið, hefur áhuga á að fylgjast með framhaldinu og er reiðubúið að leggja sitt af mörkum við innleiðingu þess.

4.Hugmyndavinna á aðstöðu þar sem klifurveggur var

Málsnúmer 202603130Vakta málsnúmer

Ungmennaráð er fullt af góðum hugmyndum varði framtíð Dallas og þetta ónýtta rými. Fram komu hugmyndir um listasmiðju, upptöku- og myndaver, eldhús, píluaðstöðu, tölvuver fyrir rafíþróttaklúbb, rými til líkamsræktar, fablab o.fl.

Ungmennaráð bendir á að rýmið gæti orðið veruleg búbót fyrir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Dallas. Slík framkvæmd myndi efla starfsemina og gera félagsmiðstöðinni kleift að bjóða upp á enn fjölbreyttara starf. Ráðið lýsir yfir vilja til að taka þátt í frekari mótun og þróun verkefnisins í samstarfi við viðeigandi aðila.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Nefndarmenn
  • Þröstur Leó Sigurðsson
  • Valgerður Fríður Lórenz Tryggvadóttir
  • Bríet Þóra Karlsdóttir
  • Viktor Logi Hjálmarsson
  • María Aðalrós Sigurðardóttir
Starfsmenn
  • Hera Margrét Guðmundsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Hera Margrét Guðmundsdóttir Frístundafulltrúi Dalvíkurbyggðar