Ungmennaþing SSNE á Húsavík

Málsnúmer 202604068

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð - 49. fundur - 16.04.2026

Bríet Þóra og María Aðalrós kynntu fyrir nefndarmeðlimum ferð sína á Húsavík á Ungmennaþingi SSNE 2026.

Farið var yfir helstu niðurstöður þingsins, þar sem meðal annars kom fram að ungt fólk kallar eftir skýrara hlutverki ungmennaráða, auknum raunverulegum áhrifum í ákvarðanatöku sveitarfélaga og bættri eftirfylgni mála.

Ungmennaráð ræddi þessi atriði og lýsti yfir áhuga á að funda oftar og taka fleiri mál til umfjöllunar.