Hugmyndavinna á aðstöðu þar sem klifurveggur var

Málsnúmer 202603130

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð - 49. fundur - 16.04.2026

Ungmennaráð er fullt af góðum hugmyndum varði framtíð Dallas og þetta ónýtta rými. Fram komu hugmyndir um listasmiðju, upptöku- og myndaver, eldhús, píluaðstöðu, tölvuver fyrir rafíþróttaklúbb, rými til líkamsræktar, fablab o.fl.

Ungmennaráð bendir á að rýmið gæti orðið veruleg búbót fyrir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Dallas. Slík framkvæmd myndi efla starfsemina og gera félagsmiðstöðinni kleift að bjóða upp á enn fjölbreyttara starf. Ráðið lýsir yfir vilja til að taka þátt í frekari mótun og þróun verkefnisins í samstarfi við viðeigandi aðila.