Umhverfisráð

303. fundur 16. mars 2018 kl. 08:15 - 11:15 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
  • Marinó Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá

1.Umsókn um lóð við Hringtún 9a og 9b

Málsnúmer 201803026Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 7. mars 2018 óska Eðalbyggingar ehf eftir lóðinni Hringtún 9a-9b, Dalvík.
Undir þessum lið komu inn á fundinn kl. 08:20 þeir Ari Már Gunnarsson fyrir hönd SG Húseininga, Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverk ehf og Ómar Guðmundsson fyrir hönd Eðalbygginga ehf.
Samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins voru dregin spil og Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverks ehf dróg hæsta spilið.
Sviðsstjóra er því falið að ganga frá lóðarleigusamningi við Tréverk ehf.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

2.Umsókn um lóð við Hringtún 9a-9b, Dalvík

Málsnúmer 201803055Vakta málsnúmer

Með innsendur erindi dags. 14. mars 2018 óskar Tréverk ehf eftir lóðinni Hrigtún 9a-9b, Dalvík.
Undir þessum lið sátu þeir Ari Már Gunnarsson fyrir hönd SG Húseininga, Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverk ehf og Ómar Guðmundsson fyrir hönd Eðalbygginga ehf.
Samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins voru dregin spil og Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverks ehf dróg hæsta spilið.
Sviðsstjóra er því falið að ganga frá lóðarleigusamningi við Tréverk ehf.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

3.Umsókn um lóð við Hringtún 9a-9b, Dalvík

Málsnúmer 201803059Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 14. mars 2018 óska SG Húseiningar ehf eftir lóðinni Hringtún 9a-9b, Dalvík.
Undir þessum lið sátu þeir Ari Már Gunnarsson fyrir hönd SG Húseininga, Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverk ehf og Ómar Guðmundsson fyrir hönd Eðalbygginga ehf.
Samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins voru dregin spil og Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverks ehf dróg hæsta spilið.
Sviðsstjóra er því falið að ganga frá lóðarleigusamningi við Tréverk ehf.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

4.Umsókn um lóð við Hringtún 11a-11b

Málsnúmer 201803056Vakta málsnúmer

Með innsendur erindi dags. 14. mars 2018 óskar Tréverk ehf eftir lóðinni Hrigtún 11a-11b, Dalvík.
Undir þessum lið sátu þeir Ari Már Gunnarsson fyrir hönd SG Húseininga, Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverk ehf og Ómar Guðmundsson fyrir hönd Eðalbygginga ehf.
Samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins voru dregin spil og Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverks ehf dróg hæsta spilið.
Sviðsstjóra er því falið að ganga frá lóðarleigusamningi við Tréverk ehf.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

5.Umsókn um lóð við Hringtún 11a og 11b

Málsnúmer 201803025Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 7. mars 2018 óska Eðalbyggingar ehf eftir lóðinni Hringtún 11a-11b, Dalvík
Undir þessum lið sátu þeir Ari Már Gunnarsson fyrir hönd SG Húseininga, Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverk ehf og Ómar Guðmundsson fyrir hönd Eðalbygginga ehf.
Samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins voru dregin spil og Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverks ehf dróg hæsta spilið.
Sviðsstjóra er því falið að ganga frá lóðarleigusamningi við Tréverk ehf.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

6.Umsókn um lóð við Hringtún 11a-11b, Dalvík

Málsnúmer 201803060Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 14. mars 2018 óska SG Húseiningar ehf eftir lóðinni Hringtún 11a-11b, Dalvík.
Undir þessum lið sátu þeir Ari Már Gunnarsson fyrir hönd SG Húseininga, Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverk ehf og Ómar Guðmundsson fyrir hönd Eðalbygginga ehf.
Samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins voru dregin spil og Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverks ehf dróg hæsta spilið.
Sviðsstjóra er því falið að ganga frá lóðarleigusamningi við Tréverk ehf.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

7.Umsókn um lóð við Hringtún 13-15

Málsnúmer 201803024Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 7. mars 2018 óska Eðalbyggingar ehf eftir lóðinni Hringtún 13-15, Dalvík
Undir þessum lið sátu þeir Ari Már Gunnarsson fyrir hönd SG Húseininga, Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverk ehf og Ómar Guðmundsson fyrir hönd Eðalbygginga ehf.
Samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins voru dregin spil og Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverks ehf dróg hæsta spilið.
Sviðsstjóra er því falið að ganga frá lóðarleigusamningi við Tréverk ehf.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

8.Umsókn um lóð við Hringtún 13-15, Dalvík

Málsnúmer 201803057Vakta málsnúmer

Með innsendur erindi dags. 14. mars 2018 óskar Tréverk ehf eftir lóðinni Hrigtún 13-15, Dalvík.
Undir þessum lið sátu þeir Ari Már Gunnarsson fyrir hönd SG Húseininga, Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverk ehf og Ómar Guðmundsson fyrir hönd Eðalbygginga ehf.
Samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins voru dregin spil og Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverks ehf dróg hæsta spilið.
Sviðsstjóra er því falið að ganga frá lóðarleigusamningi við Tréverk ehf.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

9.Umsókn um lóð við Hringtún 13-15, Dalvík

Málsnúmer 201803061Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 14. mars 2018 óska SG Húseiningar ehf eftir lóðinni Hringtún 13-15, Dalvík.
Undir þessum lið sátu þeir Ari Már Gunnarsson fyrir hönd SG Húseininga, Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverk ehf og Ómar Guðmundsson fyrir hönd Eðalbygginga ehf.
Samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins voru dregin spil og Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverks ehf dróg hæsta spilið.
Ari Már, Björn og Ómar viku af fundi kl. 08:27.
Sviðsstjóra er því falið að ganga frá lóðarleigusamningi við Tréverk ehf.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

10.Umsókn um lóð við Hringtún 42, Dalvík

Málsnúmer 201803014Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi óska þau Jón Ingi Sigurðarsson og Hugrún Ósk Ágústsdóttir eftir lóðinni við Hringtún 42, en fyrri lóðarhafar hafa skilað inn lóðinni.
Karl Ingi Atlason lýsti sig vanhæfan og vék af fundi kl 08:40
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi við umsækjendur.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

11.Umsókn um stækkun á lóð við Hringtún 38, Dalvík.

Málsnúmer 201802103Vakta málsnúmer

Með innsendum rafpósti dags. 20. febrúar 2018 óska þau Óskar Óskarsson og Lilja Björk Ólafsdóttir eftir stækkun á lóðinni Hringtún 38, Dalvík.
Karl Ingi Atlason kom aftur inn á fundinn kl 08:45
Umhverfisráð hafnar stækkun á lóðinni og felur sviðsstjóra að upplýsa umsækjendur um umræður á fundinum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

12.Umsókn um lóð við Öldugötu 12, Árkógssandi.

Málsnúmer 201803017Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 6. mars 2018 óskar Katla ehf eftir lóðinni við Öldugötu 12, Árskógssandi.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi við umsækjanda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

13.Umsókn um lóð við Öldugötu 14, Árskógssandi.

Málsnúmer 201803016Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 6. mars 2018 óskar Katla ehf eftir lóðinni við Öldugötu 14, Árskógssandi.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi við umsækjanda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

14.Umsókn um lóð við Öldugötu 16, Árskógssandi

Málsnúmer 201803015Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 6. mars 2018 óskar Katla ehf eftir lóðinni við Öldugötu 16, Árskógssandi.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi við umsækjanda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

15.Umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á eign 0201 að Goðabraut 3, Dalvík.

Málsnúmer 201801126Vakta málsnúmer

Til afgreiðslu breyttar teikningar af áður samþykktum breytingu á Goðabraut 3, Dalvík
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að afla samþykkis meðeiganda ásamt drögum að nýjum eignaskiptasamningi. Ráðið felur sviðsstjóra að óska eftir grendarkynningu á þeim breytingum sem óskað er eftir áður en byggingarleyfi er gefið út, ásamt umsögn slökkvilisstjóra.

Ráðið óskar eftir að framkvæmdin verði grendarkynnt eftirfarandi aðilum:
Ráðhús Dalvíkur
Menningarhúsið Berg
Goðabraut 4
Hafnarbraut ( Reitir)
Hafnarbraut 2a, 2b og 4
Sognstún 2 og 4

Samþykkt með fimm atkvæðum.

16.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201803054Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 13. mars 2018 óskar Kristján E Hjartarsson fyrir hönd eiganda að Árgerði, Árskógssandi eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi að lokinni grenndarkynning.

Grenndarkynna skal framkvæmdina fyrir eftirfarandi nágrönnum
Árbakki
Viðaholt
Aðalbraut 11

Samþykkt með fimm atkvæðum.

17.Umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á Öldugötu 4, Árskógssandi.

Málsnúmer 201803019Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 01. mars 2018 óskar Þórir Guðmundsson eftir byggingarleyfi fyrir hönd eigenda að Öldugötu 4, Árskógssandi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð óskar eftir að farið sé að kröfum slökkvilisstjóra hvað varða eldvarnir.
Einnig óskar ráðið eftir að framkvæmdin verði grenndarkynnt fyrir eigendum Aðalbrautar 2,4 og 6.
Að framanlögðu uppfylltu felur ráðið sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.

Samþykkt með fimm atkvæðum

18.Dælishólar, umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 201803034Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 2. mars 2018 óskar Vegargerðin eftir framkvæmdarleyfi vegna efnistöku í Dælishólum, Skíðadal.
Umhverfisráð frestar afgreiðslu á umbeðnu framkvæmdarleyfi og felur sviðsstjóra að óska eftir fundi með fulltrúa Vegagerðarinnar.
Ráðið óskar eftir upplýsingum um innihald námunnar, þar sem gerðar eru ákveðnar kröfur til malarslitlagsefnis, því eiga að liggja fyrir rannsóknir á kornadreifingu og fínefnainnihaldi námunnar.
Sveitarfélagið er tilbúið að skoða aðra möguleika á efnistöku.

Samþykkt með fjórum atkvæðum

Karl Ingi Atlason leggur fram eftirfarandi bókun:

Ég hafna malartöku í Dælishólunum. Til fjölda ára hefur efnið úr Dælishólunum verið notað sem ofaníburður í vegi í Svarfaðardal og Skíðadal við litla hrifningu íbúa þar. Reynslan er sú að þegar þetta moldar- og leirkennda efni blotnar verða umræddir vegakaflar hættulegir vegfarendum. Moldin veðst upp og bílar taka að rása til í drullunni. Einnig hefur það sýnt sig að það efni sem hefur verið sett í vegina snemmsumars er að mestu horfið að hausti. Ég tel því að nú sé mál að linni og skora á Vegagerðina að loka námunni í Dælishólunum.

19.Deiliskipulag Lokastígsreitur

Málsnúmer 201708070Vakta málsnúmer

Deiliskipulagstillagan var auglýst í skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 11. janúar 2018 með athugasemdafresti til 23. febrúar 2018. Engar athugasemdir á auglýsingatíma.
Umsagnir frá umsagnaraðilum voru án athugasemda.
Umhverfisráð samþykkir deiliskipulagsgögnin sem eru í formi greinagerðar, skipulagsuppdráttar og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun hana til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

20.Umferðamerkingar við smábátahöfn.

Málsnúmer 201803039Vakta málsnúmer

Til umræðu tillaga umhverfisstjóra um breytingu á umferðarmerkingum samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Ráðið lýsir áhyggjum sínum á því ástandi sem er við Martröð og leggur til að vörulosun og lestun flutningabíla verði bönnuð á þjóðveginum frá ferjubryggju suður fyrir smábátahöfn.

Sviðsstjóra falið að auglýsa breytingarnar lögformlega.

Samþykkt með fimm atkvæðum

21.Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna malartöku í landi Ytra-Hvarfs

Málsnúmer 201803052Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 1. og 14. mars 2018 óska eigendur Ytra-Hvarf eftir framkvæmdarleyfi vegna malartöku við Ytra-Hvarf samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðin leyfi þegar og ef jákvæðar umsagnir berast frá Fiskistofu og veiðifélagi Svarfaðardalsár.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

22.Hauganes og Árskógssandur, lóðir fyrir hreinsistöðvar fráveitu.

Málsnúmer 201803058Vakta málsnúmer

Til kynningar fyrirhugaðar staðsetningar á nýjum hreinsistöðvum fráveitu á Árskógssandi og Hauganesi.
Ráðinu lýst vel á framlögð gögn, en leggur áherslu á að við endanlega staðsetningu hreinsistöðvar á Árskógssandi verði gert ráð fyrir að áfram verði hægt að komast vegslóða niður í fjöru.

Lagt fram til kynningar.

23.Endurskoðun á viðmiðunarreglum snjómoksturs

Málsnúmer 201603025Vakta málsnúmer

Til umræðu endurskoðun á viðmiðunarreglum snjómoksturs í Dalvíkurbyggð, en tillögunni var vísað aftur til umhverfisráðs á 856 fundi byggðarráðs þann 15.02.2018.
Umhverfisráð leggur fram þær breytingar á viðmiðunarreglum snjómoksturs sem fram koma í tillögu ráðsins.
Þær breytingar sem lagðar eru til í Svarfaðar- og Skíðadal koma til vegna aukinnar þjónustu Vegagerðarinnar.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 11:15.