Umhverfisráð

293. fundur 01. september 2017 kl. 08:15 - 11:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá

1.Ábendingar og kvartanir vegna þjónustu

Málsnúmer 201708043Vakta málsnúmer

Til umræðu ábendingar/kvartani frá íbúa.
Lagt fram til kynningar.

2.Umsókn um stöðuleyfi fyrir stöðuhýsi í landi Ölduhæðar.

Málsnúmer 201708057Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 21.ágúst 2017 óskar Sigurður Jónsson eftir stöðuleyfi fyrir stöðuhýsi að Ölduhæð í landi Skáldalækjar- ytri.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

3.Umsókn um stöðuleyfi fyrir stöðuhýsi að Sæbakka í landi Skáldalækjar-ytri.

Málsnúmer 201708058Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 21.ágúst 2017 óskar Filippía S Jónsdóttir eftir stöðuleyfi fyrir stöðuhýsi að Sæbakka í landi Skáldalækjar-Ytri.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

4.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201708060Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 21. ágúst 2017 óskar Birkir Árnason eftir byggingarleyfi fyrir stálgrindarhús að Vallholti, Árskógsströnd.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið byggingarleyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

5.Umsókn um lóð

Málsnúmer 201708056Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 22. ágúst 2017 óskar Þorvaldur Ingi Baldvinsson eftir lóðinni Hringtún 24, Dalvík.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að úthluta umsækjanda lóðinni.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

6.Umsókn um lóð að Hrigtúni 40, Dalvík

Málsnúmer 201708074Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 28. ágúst 2017 óskar Jolanta Krystyna Brandt eftir lóðinni Hrigtún 40, Dalvík.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að úthluta umsækjanda lóðinni.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Karl Ingi Atlason lýsti sig vanhæfan undir þessum lið og vék af fundi kl. 08:36

7.Umsókn um lóð

Málsnúmer 201706065Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 13. júní 2017 óskar Gunnlaugur Svansson eftir lóðinni Sjávarbraut 5 til leigu.
Á 291. fundi umhverfisráðs var eftirfandi bókað.
"Ráðið leggur til að málinu verði frestað til næsta fundar og sviðsstjóra falið að greina umsækjanda frá ástæðu þess."
Umhverfisráð sér sér ekki fært að verða við ósk umsækjanda um umrædda lóð að svo stöddu þar sem reglur um lóðaveitingar í Dalvíkurbyggð gera ráð fyrir að lóðir séu auglýstar áður en þeim er úthlutað. Lóðin að Sjávarbraut 5 hefur ekki verið auglýst en hún verður auglýst eins fljótt og kostur er á heimasíðu sveitarfélagsins.
Einnig bendir ráðið á að í reglunum um lóðaveitingar er ákvæði í gr. 3.3. sem segir að umsækjendur skuli tilgreina með glöggum hætti byggingaáform sín og framkvæmdahraða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

8.Sjávarbraut 5, Dalvík, umsókn um lóð.

Málsnúmer 201708031Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 18. ágúst 2017 óskar Óskar Óskarsson fyrir hönd Valeska ehf eftir lóðinni Sjávarbraut 5, Dalvík.
Umhverfisráð sér sér ekki fært að verða við ósk umsækjanda um umrædda lóð að svo stöddu þar sem reglur um lóðaveitingar í Dalvíkurbyggð gera ráð fyrir að lóðir séu auglýstar áður en þeim er úthlutað. Lóðin að Sjávarbraut 5 hefur ekki verið auglýst en hún verður auglýst eins fljótt og kostur er á heimasíðu sveitarfélagsins.
Einnig bendir ráðið á að í reglunum um lóðaveitingar er ákvæði í gr. 3.3. sem segir að umsækjendur skuli tilgreina með glöggum hætti byggingaáform sín og framkvæmdahraða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
Karl Ingi Atlason kom aftur inn á fundin kl. 09:06

9.Umsókn um stækkun á lóð

Málsnúmer 201708087Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 23. ágúst 2017 óskar Freydís Dana Sigurðardóttir eftir stækkun á lóð við íbúðarhúsið við Árskóg samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð samþykkir umsókn um stækkun á lóðinni Árskógur lóð 1 og felur sviðsstjóra að gera nýjan lóðarleigusamning.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
Karl Ingi Atlason situr hjá.

10.Sandskeið 31, umsókn um stækkun lóðar.

Málsnúmer 201708034Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 18. ágúst 2017 óskar Hallgrímur Hreinsson fyrir hönd Dalverks eignarhaldsfélags ehf eftir stækkun á lóðinni við Sandskeið 31 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Frestað til næsta fundar.

11.Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020: Landnotkun við Árskógarskóla

Málsnúmer 201708082Vakta málsnúmer

Lögð fram skipulagslýsing þar sem m.a. er gerð grein fyrir viðfangsefni og helstu forsendum.
Umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna almenningi og hagsmunaraðilum og senda hana umsagnaraðilum.
Samþykkt með fimm atkvæðum

12.Deiliskipulag íþróttasvæðis 2017

Málsnúmer 201708069Vakta málsnúmer

Lögð var fram skipulagslýsing á íþróttasvæði Dalvíkur,
deiliskipulag og breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem m.a. er gerð grein fyrir viðfangsefni og helstu forsendum.
Umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna almenningi og hagsmunaraðilum og senda hana umsagnaraðilum.
Samþykkt með fimm atkvæðum

13.Deiliskipulag Lokastígsreitur_2017

Málsnúmer 201708070Vakta málsnúmer

Lögð fram skipulagslýsing af deiliskipulagi Lokastígsreits þar sem m.a. er gerð grein fyrir viðfangsefni og helstu forsendum.
Umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna almenningi og hagsmunaraðilum og senda hana umsagnaraðilum.
Samþykkt með fimm atkvæðum

14.Umsókn um breytta notkun á eign 0203 úr íbúð í iðnaðarrými.

Málsnúmer 201708080Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 28. ágúst 2017 óskar Ella Vala Ármannsdóttir eftir breyttri notkun á íbúð 0203 úr íbúð í iðnaðarrými samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð samþykkir að veita umbeðna breytingu á skráningu á eign 0203 með fyrirvara um að breytingar á hönnun verði gerðar í samræmi við athugasemdir slökkviliðsstjóra.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

15.Framkvæmdir U&T 2017

Málsnúmer 201705135Vakta málsnúmer

Til umræðu staða framkvæmda 2017.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs