Menningarráð

70. fundur 06. desember 2018 kl. 08:00 - 09:35 í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Valdemar Þór Viðarsson varaformaður
  • Heiða Hilmarsdóttir aðalmaður
  • Ella Vala Ármannsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Hlynur Sigursveinsson Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá

1.Frá sóknarnefnd Dalvíkurkirkju - fjárhagsáætlun 2019

Málsnúmer 201808100Vakta málsnúmer

Styrkveiting menningarráðs til sóknarnefndar Dalvíkurkirkju 2019
Lagt fram til kynningar.

2.Samningur um afnot, umráð og útleigu á Ungó

Málsnúmer 201709109Vakta málsnúmer

Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti greinargerðir frá Leikfélagi Dalvíkur og Gísla,Eirík,Helga um afnot á Ungó 2018 til 2019.
Lagt fram til kynningar. Sviðsstjóra falið að framlengja leigusamninga við Leikfélag Dalvíkur og Gísla,Eirík,Helga ehf. til eins árs.

3.Sjávarútvegssaga Dalvíkurbyggðar.

Málsnúmer 201510077Vakta málsnúmer

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 886
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að kanna möguleika á styrkjum til þess að vinna og safna saman heimildum um sögu sjávarútvegs í Dalvíkurbyggð, bæði skriflegar og munnlegar heimildir.
Lagt fram til kynningar.

4.Ósk um breytingu á styrk

Málsnúmer 201811149Vakta málsnúmer

Erindi frá Írisi Hauksdóttur um breytingu á styrk frá menningar- og viðurkenningarsjóði vegna söngnámskeiðs fyrir börn sumarið 2018.
Í 5.gr. vinnureglna Menningarráðs vegna úthlutunar styrkja af framlagi til menningarmála segir "Verkefni/atburðir skulu eiga sér stað á almannaksárinu sem stykrveiting fer fram." í ljósi þessa er beiðni um að færa námskeið í söng fyrir börn fram á árið 2019 hafnað og umsækjanda bent á að hann getur sótt um að nýju þegar opnað verður fyrir styrkumsóknir í febrúar 2019. Styrkveiting til jólatónleikahalds er óbreytt svo fremi sem jólatónleikar verða haldnir.

5.Fjárhagsleg stöðuskýrsla jan. til og með nóv. 2018

Málsnúmer 201812011Vakta málsnúmer

Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti fjármálastöðu málaflokks 05 eins og hún var 31. nóvember 2018.
Lagt fram til kynningar

6.Hlutverk menningarráðs með tilliti til menningarverðmæta

Málsnúmer 201812014Vakta málsnúmer

Staðan á gamla skólanum.
Menningarráð fór yfir hugmyndir um nýtingu gamla skólans og útkomuna úr íbúakönnun um framtíðarnýtingu á húsnæðinu og telur nauðsynlegt að dagsetning á íbúafundi verði ákveðin sem fyrst og auglýst.

Fundi slitið - kl. 09:35.

Nefndarmenn
  • Valdemar Þór Viðarsson varaformaður
  • Heiða Hilmarsdóttir aðalmaður
  • Ella Vala Ármannsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Hlynur Sigursveinsson Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs