Menningarráð

75. fundur 19. september 2019 kl. 08:30 í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Valdemar Þór Viðarsson varaformaður
  • Heiða Hilmarsdóttir aðalmaður
  • Ella Vala Ármannsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu og menningarmála
Dagskrá
Björk Eldjárn Kristjánsdóttir sat fundinn undir liðum 1 - 2. Björk fór af fundi kl. 09:45

1.Starfs-og fjárhagsáætlun 2020

Málsnúmer 201903029Vakta málsnúmer

Björk Eldjárn Kristjánsdóttir forstöðumaður safna fór yfir helstu áherslur og breytingar í starfs- og fjárhagsáætlun safna fyrir fjárhagsárið 2020.
Menningarráð samþykkir starfsáætlun safna í Dalvíkurbyggð í samræmi við þær breytingar og umræður sem fóru fram á fundinum.

Menningarráð lýsir mikilli ánægju yfir frjórri starfsemi safna í Dalvíkurbyggð.

2.Stöðumat janúar - júní 2019

Málsnúmer 201907059Vakta málsnúmer

Björk Eldjárn Kristjánsdóttir forstöðumaður safna fór yfir fjárhagslegt stöðumat frá janúar til júní 2019.
Menningarráð þakkar Björk fyrir góða kynningu.

3.Fjárhagsáætlun 2020; Frá Dalvíkurkirkju - vegna fjárhagsáætlunar 2020

Málsnúmer 201908065Vakta málsnúmer

Á 917. fundi Byggðaráðs Dalvíkurbyggðar þann 9. september sl., var tekin fyrir umsókn frá sóknarnefnd Dalvíkurkirkju um áframhaldandi styrk vegna Dalvíkurkirkju.

Tekið fyrir erindi frá Sóknarnefnd Dalvíkursóknar, dagsett þann 28. ágúst 2019, þar sem óskað er eftir fjárstyrk á fjárhagsáætlun 2020 með niðurfellingu fasteignagjalda. Með erindinu fylgdi ársreikningur Dalvíkurkirkju vegna ársins 2019.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til menningarráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2020.
Menningarráð leggur til að orðið verði við beiðni um rekstrarstyk að fjárhæð kr. 170.000. Styrkurinn verði tekinn af lykli 5810 - 9145.

4.Endurskoðun á erindisbréfi menningarráðs Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 201909045Vakta málsnúmer

Erindisbréf menningarráðs tekið til endurskoðunar af ráðinu.
Menningarráð samþykkir erindisbréf Menningarráðs Dalvíkurbyggðar og vísar því til samþykktar í sveitastjórn Dalvíkurbyggðar.

5.Endurskoðun á Menningarstefnu Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 201909050Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar

Fundi slitið.

Nefndarmenn
  • Valdemar Þór Viðarsson varaformaður
  • Heiða Hilmarsdóttir aðalmaður
  • Ella Vala Ármannsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu og menningarmála