Félagsmálaráð

293. fundur 10. febrúar 2026 kl. 08:15 - 10:15 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Júlíus Magnússon formaður
  • Magni Þór Óskarsson varaformaður
  • Nimnual Khakhlong aðalmaður
  • Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri
  • Þórhalla Karlsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Júlíus Magnússon Formaður félagsmálaráðs
Dagskrá

1.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202511052Vakta málsnúmer

Bessi Víðisson vék af fundi vegna vanhæfis kl 8:17

Trúnaðarmál - 202511052

Bókað í trúnaðarmálabók

2.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202601036Vakta málsnúmer

Bessi Víðisson kom inn á fund aftur kl 8:20

Trúnaðarmál - 202601036

Bókað í trúnaðarmálabók.

3.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202602024Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál 202602024

Bókað í trúnaðarmálabók

4.Notendastýrð persónuleg þjónusta - umsókn um framlög vegna langtímaveikinda aðstoðarfólks

Málsnúmer 202501006Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags. 01.12.2025 frá Innviðaráðuneytinu. En samkvæmt 20.gr reglugerðar nr. 1250/2018 um notendastýrða persónulega aðstoð greiðir jöfnunarsjóður, á grundvelli umsókna umsýsluaðila, framlög til að standa straum af viðbótarútgjöldum vegna langtímaveikinda aðstoðarfólks. Kostnaðarþátttaka Jöfnunarsjóðs er sú sama og í NPA samningnum sjálfum eða 25%
Lagt fram til kynningar.

5.Tengiráðgjafar

Málsnúmer 202512037Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags. 25.11.2025 frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu þar sem fram kemur að Félags- og húsnæðismálaráðuneytið leggi ríka áherslu á að efla þjónustu við eldra fólk, með sérstakri áherslu á uppbyggingu hjúkrunarrýma og dagdvalarrýma um land allt. Á síðustu árum hefur myndast veruleg uppsöfnuð þörf fyrir ný hjúkrunarrými og er því brýnt að ráðast í markvissar aðgerðir til að bregðast við þeirri stöðu.
Samhliða uppbyggingu hjúkrunarheimila verði áfram unnið að því að styðja við eldra fólk til að búa á eigin heimili eins lengi og kostur er. Til þess verður lögð áhersla á frekari eflingu og þróun dagdvala, sem eru mikilvægur þáttur í því að styðja sjálfstæða búsetu, draga úr félagslegri einangrun og efla lífsgæði eldra fólks.
Undanfarin ár hefur ráðuneytið veitt styrki til ráðningar tengiráðgjafa sem höfðu það hlutverk að vinna gegn félagslegri einangrun og einmanaleika viðkvæmra hópa. Tengiráðgjafarnir hafa gegnt veigamiklu hlutverki og unnið ötullega að markmiði sínu, auk þess sem þeir hafa verið mikilvægur þáttur í undirbúningi og innleiðingu samþættrar heimaþjónustu á þróunarsvæðum Gott að eldast.
Styrkveitingar til ráðningar tengiráðgjafa voru hluti af viðbrögðum stjórnvalda við félags- og heilsufarslegum afleiðingum Covid-19 heimsfaraldursins. Sérstökum mótvægisaðgerðum til að sporna gegn afleiðingum heimsfaraldursins er nú lokið. Af þeim sökum er ekki unnt að veita áframhaldandi styrki til ráðningar tengiráðgjafa.
Ráðuneytið mun áfram leggja ríka áherslu á að efla stuðningsúrræði og uppbyggingu þjónustu fyrir eldra fólk, tryggja samfellu í þróun þjónustu og vinna að fjölbreyttum lausnum sem styrkja bæði einstaklinga og nærumhverfi þeirra.

Dalvíkurbyggð er þátttakandi í tilraunaverkefninu Gott að eldast og var ráðinn tengiráðgjafi á tilraunatímabilinu eða út árið 2027. Búið er að senda bréf til byggðarráðs vegna þessa í samvinnu við forstöðumann Dalbæjar.
Félagsmálaráð lýsir yfir óánægju sinni með ákvörðun Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um að hætta að veita fjárstyrk í störf tengiráðgjafa í verkefninu Gott að eldast. Félagsmálaráð skorar á ráðuneytið að staðið verði við nýgerða samninga og greiði þessa upphæð á meðan tilraunaverkefninu Gott að eldast stendur. Mjög mikil vinna og metnaður hefur farið í þetta verkefni og telur ráðið þetta vera algjöran forsendubrest fyrir þessu mikilvæga verkefni.

6.Ný skýrsla - Umönnunarbilið og þjónusta sveitarfélaga

Málsnúmer 202601017Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags. 10.12.2025 frá Jafnréttisstofu. Kynnt er skýrsla þar sem fjallað er um umönnunarbil milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar barna sem hefur verið áskorun fyrir fjölskyldur. Ný skýrsla Jafnréttisstofu sýnir að án heildstæðrar stefnu og jafnréttismats geta kerfisbreytingar fest kynjahlutverk í sessi og aukið kynjabil í tekjum og tækifærum.
Lagt fram til kynningar.

7.Gæðaviðmið félagsþjónustu

Málsnúmer 202601020Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags. 13.11.2025 frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga. Samband íslenskra sveitarfélaga fundaði með samtökum stjórnenda í velferðarþjónustu sveitarfélaga 7. nóvember þar sem tilefni fundar var að ræða mögulegar athugasemdir varðandi drög að gæðaviðmiðunum í félagsþjónstu, erindi frá Gæða- og eftirlitsstofnun. Ákveðið var á fundinum að fela sérfræðingi á Stjórnsýslusviði Sambandsins að taka saman tillögur og móta hugmyndir. Lögð var síðan frá umsögn í nafni allra Velferðasviða um gæðaviðmiðin.
Lagt fram til kynningar.

8.Styrkbeiðni - Börn með ME

Málsnúmer 202601039Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags.07.01.26 frá ME félags Íslands. Óskað eftir styrk til að búa til fræðslumyndband um ME, umbrot,hönnun og slíkt. Alls er gert ráð fyrir kostnaði að upphæð 1.600.000,-
Félagsmálaráð samþykkir með fimm greiddum atkvæðum að styrkja samtökin um 80.000,- tekið af lið 02-80-9145.

9.Lyftusjóður - Drög að reglugerð um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 202601049Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags. 09.01.2026 frá Öryrkjabandalagi Íslands. Vakin er athygli á drögum að breytingu á reglugerð um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem komin er í samráðsgátt.
Lagt fram til kynningar.

10.Umsóknir um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2026

Málsnúmer 202601089Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar að félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2026
Lagt fram til kynningar.

11.Mánaðarlegar skýrslur 2026

Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar mánaðarleg skýrsla félagsmálasviðs 2026
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Nefndarmenn
  • Júlíus Magnússon formaður
  • Magni Þór Óskarsson varaformaður
  • Nimnual Khakhlong aðalmaður
  • Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri
  • Þórhalla Karlsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Júlíus Magnússon Formaður félagsmálaráðs