Fræðsluráð

226. fundur 23. maí 2018 kl. 08:15 - 10:40 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Steinunn Jóhannsdóttir formaður
  • Þórunn Andrésdóttir varaformaður
  • Felix Rafn Felixson aðalmaður
  • Auður Helgadóttir aðalmaður
  • Valdemar Þór Viðarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður á Fræðslu- og menningarsviði
Dagskrá
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, skólastjóri Krílakots og Þuríður Sigurðardóttir, fulltrúi starfsmanna leikskóla sátu fundinn undir liðum 1 og 2. Gunnþór E. Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla, sat fundinn undir liðum 3 og 4. Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla sat fundinn undir lið 5. Freyr Antonsson fulltrúi foreldra leikskólabarna mætti ekki og enginn kom í hans stað. Guðríður Sveinsdóttir, fulltrúi starfsmanna grunnskóla, boðaði forföll og enginn kom í hennar stað.

1.Ósk um launalaust leyfi

Málsnúmer 201805033Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Erlu Hrönn Sigurðardóttur, leikskólakennara, um launalaust leyfi frá störfum í Krílakoti í eitt ár frá og með 15. ágúst 2018.
Fræðsluráð samþykkir með 3 atkvæðum að veita leyfið. Valdemar Viðarsson og Auður Helgadóttir sátu hjá.
















2.Verkefnastjóri sérkennslu í Krílakoti

Málsnúmer 201805066Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og leikskólastjóri Krílakots lögðu fram beiðni um ráðningu í nýja stöðu verkefnastjóra sérkennslu á Krílakoti. Um er að ræða 100% starf. Leikskólakennari sem nú er að láta af 75% starfi hefur sinnt sérkennslu fram að þessu. Auk þess er óskað eftir 15% viðbótarstöðugildi til sérkennslu vegna aukinna þarfa. Samtals er um 40% aukningu stöðugilda að ræða. Áætlaður kostnaður við þessa aukningu er um það bil 3.000.000 kr.á ári.
Fræðsluráð samþykkir beiðnina með 5 atkvæðum.
Guðrún Halldóra og Þuríður fóru af fundi klukkan 8:56.
Gunnþór kom til fundar klukkan 8:57.

3.Ráðning skólastjóra í Árskógarskóla

Málsnúmer 201805075Vakta málsnúmer

Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarmála, gerði grein fyrir umsóknum um stöðu skólastjóra Árskógarskóla. Umsækjendur eru tveir og leggur sviðsstjóri til að Jónína Garðarsdóttir leik- og grunnskólakennari verði ráðin í starfið.
Fræðsluráð leggur einróma til að Jónínu verði boðið starfið.

4.Árskógarskóli - tímabundin ráðning umsjónarkennara og ráðning leikskólakennara.

Málsnúmer 201805068Vakta málsnúmer

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, skólastjóri, kynnti ráðningu Guðrúnar Ástu Þrastardóttur, framhaldsskólakennara, í afleysingarstarf umsjónarkennara við Árskógarskóla frá 1. ágúst 2018 til 1. apríl 2019. Tveir umsækjendur voru um starfið, hvorugur þeirra grunnskólakennari. Gitta Unn Ármannsdóttir hefur verið ráðin í starf leikskólakennara við skólann og var hún eini umsækjandinn um stöðuna.
Lagt fram til kynningar.
Gunnþór fór af fundi klukkan 9:23. Gísli Bjarnason kom til fundar á sama tíma.

5.Námsárangur

Málsnúmer 201503209Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi skýrsla vinnuhóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla við lok síðasta af þremur starfsárum hans. Einnig fundargerðir 51., 52. og 53. fundar vinnuhópsins.
Lagt fram til kynningar. Fræðsluráð þakkar starfshópnum fyrir góða vinnu og greinargóða skýrslu og leggur mikla áherslu á að farið verði að tillögu starfshópsins um að fagráð taki við keflinu og skili fundargerðum til fræðsluráðs eins og starfshópurinn hefur gert.
Gísli fór af fundi klukkan 10:08.

6.Starfslok kennsluráðgjafa

Málsnúmer 201805069Vakta málsnúmer

Lagt var fram bréf frá Dóróþeu Reimarsdóttur, dagsett 16. maí 2018, þar sem hún segir upp starfi kennsluráðgjafa á fræðslusviði frá og með 1. nóvember 2018.
Fræðsluráð þakkar Dóróþeu samstarfið og óskar henni velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur. Fræðsluráð felur sviðsstjóra að auglýsa starfið laust til umsóknar sem fyrst.

Fundi slitið - kl. 10:40.

Nefndarmenn
  • Steinunn Jóhannsdóttir formaður
  • Þórunn Andrésdóttir varaformaður
  • Felix Rafn Felixson aðalmaður
  • Auður Helgadóttir aðalmaður
  • Valdemar Þór Viðarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður á Fræðslu- og menningarsviði