Fræðsluráð

313. fundur 11. febrúar 2026 kl. 08:15 - 10:36 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
  • Emil Júlíus Einarsson varaformaður
  • Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
  • Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Formaður óskaði eftir því að bæta einu máli á dagskrá fundarins, máli nr. 202602033 undir 1.tl.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.

Aðrir sem sitja fund: Elvý G. Hreinsdóttir, Gitta Unn Ármannsdóttir, Valgerður Inga Júlíusdóttir, Ingigerður Lilja Jónsdóttir, Matthildur Matthíasdóttir, Friðrik Arnarson, Ágústa Kristín Bjarnadóttir og Una Dan Pálmadóttir.

1.Beiðni um aukið starfshlutfall vegna ÍSAT kennslu í Krílakoti

Málsnúmer 202602033Vakta málsnúmer

Á leikskólanum Krílakoti eru það 44,7% nemenda sem þörf er á að veita einhverskonar stuðning í námi. Til þess að skólinn geti komið til móts við þarfir nemenda óskar leikskólastjóri eftir heimild til þess að ráða sérkennara í 75% starfshlutfall, svo hægt sé að þjónusta betur þennan hóp nemenda, upp á framhaldið þegar þau fara í grunnskólann.
Valgerður Inga Júlíusdóttir fór yfir skipulag og aukna þörf fyrir sérkennslu á Krílakoti.

Fræðsluráð samþykkir samhljóða 5 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að samþykkja 75% stöðugildi sérkennara með áherslu á ÍSAT kennslu í Krílakoti.

Valgerður fór af fundi kl. 8:30
Una kom til fundar kl. 8:39

2.Færa skipulagsdag í Kötlukoti

Málsnúmer 202602032Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum liggur beiðni frá Ágústu Kristínu Bjarnadóttur, leikskólastjóra þess efnis að starfsfólk Kötlukots taki þátt í starfsdegi Krílakots sem haldinn verður 6.mars nk. og á móti fellur niður skipulagsdagur Kötlukots sem er áætlaður þann 4.júni skv. skóladagatali Árskógarskóla - Kötlukot.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum ofangreinda beiðni leikskólastjóra.

3.Skóladagatöl skólanna frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga.

Málsnúmer 202602031Vakta málsnúmer

Farið var yfir helstu áherslur varðandi skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2026 - 2027.

Skóladagatöl leik- og grunnskóla þurfa að liggja fyrir á næsta fundi fræðsluráðs í mars.
Lagt fram til kynningar.

4.Árskógarskóli

Málsnúmer 202405081Vakta málsnúmer

Farið yfir hvernig verkefnið gengur að sameina leik - og grunnskóla á svæðinu sem kemur að fullu til framkvæmda í haust.

Sveitarstjóri upplýsti að Ásgarður hefur verið fenginn til ráðgjafar í þeirri vinnu og er sú vinna hafin. Markmiðið er að henni verði lokið fyrir næsta fund fræðsluráðs.
Málið var rætt og ljóst er að margar spurningar vakna og mikilvægt að vinna vel að þessu máli.
Lagt fram til kynningar.

5.Fjárhagslegt stöðumat fyrir (04) fræðslumál. 2025

Málsnúmer 202403058Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og stjórnendur fara yfir rekstur leik- og grunnskóla fyrir fjárhagsárið 2025.
Lagt fram til kynningar.


Friðrik og Matthildur fóru af fundi kl. 09:19

6.Leiksýning frá Sögustund - beiðni um styrk frá Foreldrafélagi Krílakots

Málsnúmer 202601070Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Foreldrafélagi Krílakots, þar sem að þau óska eftir styrk til að kaupa leiksýningu fyrir leikskólabörn í Dalvíkurbyggð.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi, þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu á fjárhagsáætlun.

7.Boð um þátttöku í verkefninu Snemmtæk íhlutun í leikskóla með áherslu á málþroska og læsi

Málsnúmer 202602006Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu - Boð um þátttöku í verkefninu "Snemmtæk íhlutun í leikskóla með áherslu á málþroska og læsi"
Lagt fram til kynningar.

8.Rannsakendur við Kennaradeild Háskólans á Akureyri, rannsókn á því hvernig barnabækur eru notaðar í leikskólastarfi

Málsnúmer 202602034Vakta málsnúmer

Tekið fyrir bréf frá Rannveigu Oddsdóttur, ósk um að gera rannsókn við leikskólann á Krílakoti.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að leikskólar Dalvíkurbyggðar taki þátt ofangreindri rannsókn.

Ágústa, Elvý, Una, Gitta og Ingigerður fóru af fundi kl. 9:58.

9.Skólahreysti í 20 ár - ósk um styrk

Málsnúmer 202512029Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Hreysti Smiðjunni ehf. dags. í desember 2025, þar sem óskað er eftir styrk að fjárhæð kr. 250.000.

Erindið var tekið fyrir á 181.fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 15.janúar sl. og var eftirfarandi bókað:
Íþróttafulltrúa er falið að afla frekari upplýsingar um styrkbeiðnina hjá forsvarsmönnum Hreystismiðjunnar.
Afgreiðslu er frestað þar sem málið er í vinnslu hjá íþrótta- og æskulýðsráði.
Samþykkt með 4 atkvæðum.

Benedikt Snær Magnússon greiðir atkvæði á móti þar sem hann hefði viljað afgreiða málið á þessum fundi.

10.Heimsóknir fræðsluráðs í leik- og grunnskóla

Málsnúmer 201810023Vakta málsnúmer

Fræðsluráð fer í heimsókn í Árskógarskóla.
Heimsókn er frestað, ástæðan er 112 dagurinn, þar sem nemendur og starfsfólk Árskógarskóla eru staddir á Dalvík vegna hans.

Fundi slitið - kl. 10:36.

Nefndarmenn
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
  • Emil Júlíus Einarsson varaformaður
  • Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
  • Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri