Notendastýrð persónuleg þjónusta - umsókn um framlög vegna langtímaveikinda aðstoðarfólks

Málsnúmer 202501006

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 293. fundur - 10.02.2026

Tekið fyrir erindi dags. 01.12.2025 frá Innviðaráðuneytinu. En samkvæmt 20.gr reglugerðar nr. 1250/2018 um notendastýrða persónulega aðstoð greiðir jöfnunarsjóður, á grundvelli umsókna umsýsluaðila, framlög til að standa straum af viðbótarútgjöldum vegna langtímaveikinda aðstoðarfólks. Kostnaðarþátttaka Jöfnunarsjóðs er sú sama og í NPA samningnum sjálfum eða 25%
Lagt fram til kynningar.