Málsnúmer 202602077Vakta málsnúmer
Til umfjöllunar tillögur að breytingum á eftirliti með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum, sbr. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga með framkvæmdastjórum sveitarfélaga og landshlutasamtaka þann 13. febrúar sl.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi jafnframt umsögn SSNE, dagsett þann 17. febrúar sl., um drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (S-3/2026).
Á fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 17. febrúar sl. var eftirfarandi bókað um sama mál:
"Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar ítrekar mikilvægi þess að áframhaldandi vinna við málið fari fram í nánu samráði við sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra viðeigandi hagaðila, og að tryggt verði að breytingarnar leiði hvorki til kostnaðarauka né þjónustuskerðingar fyrir sveitarfélögin."