Byggðaráð

1172. fundur 15. janúar 2026 kl. 13:15 - 15:17 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson, aðalmaður boðaði forföll og Sigríður Jódís Gunnarsdóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Monika Margrét Stefánsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Kristinn Bogi Antonsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar óskaði formaður heimildar til að bæta við lið 7, mál 202601064, á dagskrá sem og lið 8, mál 202601066, og var það samþykkt samhljóða.

1.Öldungaráð; fundir og samskipti

Málsnúmer 202502027Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs fulltrúar í Öldungaráði frá Félagi eldri borgara; Valdimar Bragason, formaður Félags eldri borgara, Kolbrún Pálsdóttir, Matthína Björnsdóttir og Hildigunnur Jóhannesdóttir frá HSN. Eyrún Rafndóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs boðaði forföll.


Á 1149. fundi byggðaráðs þann 12. júní sl. fundaði Öldungaráð og með fundarboði byggðaráðs fylgdi síðasta fundargerð.
a) Á fundinum var farið yfir meðfylgjandi fundargerð og þau mál sem þá voru rædd og staða þeirra.
b) Önnur mál.

Næsti fundir áætlaðir 12. mars og 7.maí nk.

Sveitarstjóri ritaði fundargerð Öldungaráðs á fundinum.

Valdimar, Kolbrún, Helga Mattína og Hildigunnur viku af fundi kl. 14:16.
Lagt fram til kynningar.

2.Frá 385. fundi sveitarstjórnar þann 16.12.2025; Ný heimasíða sveitarfélagsins.

Málsnúmer 202509063Vakta málsnúmer

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Friðjón Árni Sigurvinsson, upplýsingafulltrúi, kl. 14:15.

Á 385. fundi sveitarstjórnar þann 16. desember sl. var eftirfarandi bókuð:
"Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdu drög að verk- og þjónustusamningum á milli Dalvíkurbyggðar og Stefnu vegna nýrrar heimasíðu, sbr. heimild í fjárhagsáætlun 2026.
Niðurstaða : Til máls tók:
Freyr Antonsson, forseti sveitarstjórnar, sem leggur fram að þessum lið sé vísað til byggðaráðs til frekari vinnslu og afgreiðslu frestað.
Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu eftirfarandi gögn:
a) Drög að verk- og þjónustusamningum á milli Dalvíkurbyggðar og Stefnu vegna nýrrar heimasíðu, sbr. heimild í fjárhagsáætlun 2026.
b) Minnisblað með fjárhagsáætlun 2026 - Afhverju ný heimasíða.
c) Minnisblað upplýsingafulltrúa dagsett þann 13. janúar 2026.
d) Tilboð í mörkun og endurhönnun á byggðamerki Dalvíkurbyggðar.

Friðjón Árni gerði grein fyrir ofangreindu.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum drög að verk- og þjónustusamningum á milli Dalvíkurbyggðar og Stefnu vegna nýrrar heimasíðu.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
b) Lagt fram til kynningar.
c) Lagt fram til kynningar.
d) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu upplýsingafulltrúa að gengið verði til samninga við Kríu hönnunarstofu um mörkun Dalvíkurbyggðar. Vísað á deild 21500 og til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Notkun á byggðamerki sveitarfélagsins

Málsnúmer 202507005Vakta málsnúmer

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að reglum um notkun á byggðamerki Dalvíkurbyggðar ásamt upplýsingum um stofnanamerki sem nokkrar stofnanir Dalvíkurbyggðar eru að nota.

Sjá einnig;
https://www.dalvikurbyggd.is/is/stjornsysla/fjarmal-og-rafraen-stjornsysla/utgefid-efni/byggdamerki-dalvikurbyggdar

Til umræðu ofangreint.

Friðjón Árni vék af fundi kl. 14:41.
Lagt fram til kynningar og byggðaráð felur upplýsingafulltrúa og fjármála- og stjórnsýslusviði að vinna áfram að reglunum samhljóða vinnu við mörkun Dalvíkurbyggðar og uppfærslu á byggðamerki.

4.Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsagnarbeiðni tækifærisleyfi - vegna þorrablóts í Árskógi

Málsnúmer 202601035Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 5. janúar sl., þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um tækifærisleyfi frá Þorrablótsnefnd Árskógsstrandar vegna þorrablóts í Árskógi 7. febrúar nk.
Fyrir liggur jákvæð umsögn frá slökkviliðsstjóra, dagsett þann 6. janúar 2026.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreint leyfi sé veitt, með fyrirvara um umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.

5.Frá íþróttafulltrúa; Viðaukabeiðni vegna styrks til Skíðafélagsins vegna kaupa á töfrateppi.

Málsnúmer 202512066Vakta málsnúmer

Á 1171. fundi byggðaráðs þann 8. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Skíðafélag Dalvíkur óskar eftir styrk um 10.000.000 kr til kaupa og uppsetningar á töfrateppi í aðstöðu félagsins í Böggvistaðafjalli. Fram kemur í erindinu að styrktaraðili að verkefninu sé fundinn og með umræddum styrk frá Dalvíkurbyggð er framkvæmdin að fullu fjármögnuð. Umræddur styrkur Dalvíkurbyggðar var samþykktur á árinu 2023, en á 1077.fundi byggðaráðs þann 24.ágúst 2023 var eftirfarandi bókað:
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð er tilbúið að koma með krónu á móti hverri þeirri krónu sem Skíðafélagið safnar í styrki fyrir Töfrateppið en þó að hámarki kr. 10.000.000. Skíðafélag Dalvíkur endurvekur hér með beiðni sína frá árinu 2023. Þá hefur verið send inn umsókn fyrir framkvæmdaleyfi og á 40.fundi skipulagsráðs þann 12.nóvember 2025 var eftirfarandi bókað:
Erindi dagsett 10.nóvember 2025 þar sem Hörður Elís Finnbogason f.h. Skíðafélags Dalvíkur sækir um framkvæmdaleyfi fyrir landmótun og uppsetningu færibands á skíðasvæðinu á Dalvík. Meðfylgjandi eru framkvæmdalýsing og leyfi Náttúruverndarstofnunar. Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að styrkja Skíðafélag Dalvíkur um allt að kr. 10.000.000 til kaupa á töfrateppi á árinu 2026. Íþróttafulltrúa er falið að útbúa viðaukabeiðni og leggja fyrir næsta fund byggðaráðs."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi frá íþróttafulltrúa, dagsett þann 13. janúar sl., þar sem lagt er til að styrkja Skíðafélag Dalvíkur um kr. 10.000.000 til kaupa á töfrateppi í aðstöðu Skíðafélagsins í Böggvisstaðafjalli, ásamt viðaukabeiðni þar sem lagt er til að liður 06800-9145 hækki um kr. 10.000.000.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að liður 06800-9145 hækki um kr. 10.000.000 og verði kr. 117.691.569.
Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Frá leikskólastjóra; Ósk um auka stöðugildi á Kötlukoti í Árskógarskóla

Málsnúmer 202601005Vakta málsnúmer

Á 1171. fundi byggðaráðs þann 8. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá leikskólastjóra þar sem óskað er eftir heimild til þess að auglýsa í 100% starf við Kötlukot.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að heimila leikskólastjóra að auglýsa starfið laust til umsóknar og óskar eftir því að fá viðaukabeiðni inn á næsta fund ráðsins."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni, viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 7.644.968 á deild 04240-laun vegna aukningu stöðugilda í Kötlukoti vegn inntöku nemenda í skólann. Um er að ræða 100% starf leikskólakennara frá 1. janúar - 3. júlí og svo 7,5% aukning vegna flutnings leikskólakennara frá Krílakoti. Í janúar er aukning um 4 nemendur í Kötlukoti, barngildin eru 8 sem er þá eitt stöðugildi.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 7.644.968 á deild 04240-laun og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

7.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202601064Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni leikskólastjóra Krílakots, viðauka nr. 2. við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 3.652.053 á deild 04140 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

8.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202601066Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni, viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 5.665.142 á deild 04210 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

9.Samningur um bókhald- og launavinnslu vegna Dalbæjar; endurskoðun

Málsnúmer 202411012Vakta málsnúmer

Kristinn Bogi Antonsson vék af fundi kl. 14:52 vegna vanhæfis undir þessum lið.

Á 1170. fundi byggðaráðs þann 11. desember sl. var eftirfarandi bókað:
"Kristinn Bogi Antonsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis, kl.
Á 1138. fundi byggðaráðs þann 30. janúar sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði áfram til samninga við Dalbæ um bókhalds- og launavinnslu í samræmi við ósk Dalbæjar og þær upplýsingar sem komu fram á fundinum frá forsvarsmönnum Dalbæjar.
Byggðaráð felur sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að stilla upp samningsdrögum á grundvelli minnisblaðs sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.".
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi uppfært minnisblað sviðsstjóra sem og uppfærð drög að samningi á milli Dalbæjar og Dalvíkurbyggðar um verktakaþjónustu vegna vinnslu bókhalds og launa.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að halda áfram umfjöllun í janúar.
Afgreiðslu frestað.
Kristinn Bogi tekur ekki þátt í umfjöllun vegna vanhæfis. Kristinn Bogi kom inn á fundinn að nýju kl. 15:19."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að vísa ofangreindum drögum að endurskoðun samnings til stjórnar Dalbæjar til umfjöllunar og afgreiðslu.
Kristinn Bogi tekur ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis.
Krstinn Bogi kom inn á fundinn að nýju kl. 15:03.

Fundi slitið - kl. 15:17.

Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson, aðalmaður boðaði forföll og Sigríður Jódís Gunnarsdóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Monika Margrét Stefánsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Kristinn Bogi Antonsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs