Veitu- og hafnaráð

62. fundur 12. maí 2017 kl. 07:30 - 09:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Valdimar Bragason formaður
  • Óskar Óskarsson Varaformaður
  • Ásdís Svanborg Jónasdóttir Aðalmaður
  • Kristján Hjartarson Aðalmaður
  • Hólmfríður Guðrún Skúladóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
  • Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson Starfsmaður
Fundargerð ritaði: Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
ÁrniHalldórsson var gestur fundarins og einnig var Freyr Antonsson í símasambandi við fundinn. Þeir fóru af fundi kl. 8:10. Pétur Ólafsson var einnig í símasambandi við fundinn frá kl. 8:35 til kl. 8:45.

1.Farþegagjald, upplýsingaskylda aðila í ferðaþjónustu.

Málsnúmer 201611067Vakta málsnúmer

Á 55. fundi ráðsins var fjallað um „Farþegagjald, upplýsingaskylda aðila í ferðaþjónustu.“ Þar kom eftirfarandi fram:

„Umræður hafa verið innan veitu- og hafnaráðs hvernig upplýsingaskyldu fyrirtækja í ferðaþjónustu sem nýta sér aðstöðu hjá Hafnasjóði Dalvíkurbyggðar er háttað.

Veitu- og hafnaráð samþykkir að frá og með áramótum skal ferðaþjónustuaðilum sem greiða farþegagjald til Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar gert skylt að senda rafpóst við brottför skips þar sem fram kemur skipsnúmer ásamt fjölda farþega um borð.“

Á 286. fundi sveitarstjórnar sem haldinn var 22.11.2016 var eftirfarandi fært til bókar: 'Bjarni Th. Bjarnason, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:

„Forsvarsfólk hvalaskoðunarfyrirtækja í Dalvíkurbyggð hefur mótmælt samþykkt veitu- og hafnaráðs frá 9. nóvember sl. og telur að það fyrirkomulag sem lagt er til um upplýsingaskyldu sé illframkvæmanlegt þ.e. að senda inn tölur um farþegafjölda fyrir hverja ferð. Sveitarstjórn leggur til að veitu- og hafnaráð taki málið upp að nýju og leiti leiða til að koma á fyrirkomulagi sem jafnt hafnasjóður og ferðaþjónustuaðilar geta sætt sig við.“

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu sveitarstjóra.'



56. fundi veitu- og hafnaráðs sem haldinn var 7. desember 2016 undir 3. tl. var farþegagjaldið einnig til umræðu.

Á framangreindum fundi var eftirfarandi samþykkt. „Veitu- og hafnaráð samþykkir að formaður og sviðsstjóri boði hagsmunaaðila til fundar um ofangreint málefni og leggi fram tillögu að lausn málsins á næsta fund ráðsins.“



Sveitarstjóri og sviðsstjóri áttu fund með hagsmunaaðilum 27. mars. Á þeim fundi var til umræðu hvernig best væri staðið að málum með tilkynningu á farþegafjölda hvalaskoðunarfyrirtækja. Fundarmenn urðu ásáttir um að leggja það til við veitu- og hafnaráð að sendur verði rafpóst, í síðasta lagi 5. dag hvers mánaðar, með farþegafjölda nýliðins mánaðar til yfirhafnavarðar.



Veitu- og hafnaráð getur ekki samþykkt tillögu að fyrirkomulagi sem sett er fram eftir fund með hagsmunaaðilum þann 27. mars og samþykkir að óska eftir að þeir hagsmunaaðilar, sem um ræðir, mæti á næsta fund veitu- og hafnaráðs til umræðu um skráningu farþegagjalda.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða þá túlkun á farþegagjaldi að greiða beri af öllum farþegum sem í ferð fara. Samantekt af fjölda farþega verði skilað í síðasta lagi 5. dag hvers mánaðar til yfirhafnavarðar þar sem sundurliðað verði fjöldi ferða og farþegafjöldi í hverri ferð. Sviðsstjóri mun senda til ferðaþjónustuaðila skema til útfyllingar.

2.Ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 201705013Vakta málsnúmer

Með rafpósti sem sendur var 2. maí 2017, til allra aðildarsveitarfélaga að Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga, er ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga fyrir árið 2016. Samkvæmt 2. mgr. 12. gr. samþykkta samtakanna skal stjórn samþykkja ársreikninga eftir að þeir hafa verið kynntir aðildarsveitarfélögum.



Athugasemdir, ef einhverjar eru, sendist vinsamlega til undirritaðs fyrir fimmtudaginn 24. maí nk.



Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við framlagðan ársreikning.

3.Ársreikningur Hafnasambands Íslands

Málsnúmer 201705014Vakta málsnúmer

Með rafpósti sem sendur var, 2. maí 2017, til allra aðildarhafna að Hafnasambandi Íslands barst ársreikningur Hafnasambands Íslands fyrir árið 2016. Samkvæmt 5. mgr. 5. gr. laga Hafnasambands Íslands skal stjórn samþykkja ársreikninga eftir að þeir hafa verið kynntir aðildarhöfnunum.



Athugasemdir, ef einhverjar eru, sendist vinsamlega til undirritaðs fyrir þriðjudaginn 16. maí nk.



Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við framlagðan ársreikning.

4.Fundargerðir 2017

Málsnúmer 201702027Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum lá fundargerð 394. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 28. apríl sl.
Lögð fram til kynningar.

5.Austurgarður, nýbygging og tilheyrandi

Málsnúmer 201611047Vakta málsnúmer

Með rafpósti sem barst 2. maí 2017 voru kynntar niðurstöður útboðs í stálefni vegna Austurgarðs.

Vegagerðin og Ríkiskaup hafa yfirfarið tilboð sem opnuð voru þann 28. apríl s.l. í verk „20467 Steel sheet piling and Achorage material for several harbours in Iceland“.



Yfirferðin leiddi í ljós að lægst gildandi tilboð fyrir Dalvík er frá Meever & Meever (Hollandi) að upphæð 492.003 EUR eða 57.096.948 kr án vsk og afhend á Dalvík.



Fram kemur að lagt sé til að gengið verði til samninga við Meever & Meever á grundvelli tilboðsins.

Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða tillögu Vegagerðarinnar og leggur til við sveitarstjórn að hún heimili Vegagerðinni að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda.



6.Austurgarður í Dalvíkurhöfn, ósk leyfi til framkvæmda.

Málsnúmer 201702030Vakta málsnúmer

Í bréfi dags. 24. mars 2017 sendi ráðuneytið Vegagerðinni til afgreiðslu erindi frá Dalvíkurbyggð frá 3. febrúar 2017. Í erindi sveitarfélagsins kom fram ósk um leyfi til framkvæmda við hafnargerð sem skv samgönguáætlun 2015-2018 átti að fá 132,6 m.kr. framlag frá ríkinu 2017 og 90 m.kr. 2018. Þetta fjárframlag skilaði sér hins vegar ekki í fjárlögum 2017. Hafnarsjóður Dalvíkurbyggðar bíðst hins vegar til að taka lán fyrir framlagi ríkisins gegn þeirri tryggingu að framlag ríkisins vegna framkvæmda á árinu 2017 verði greitt á árinu 2018.



Vegagerðin telur sér ekki heimilt að samþykkja flýtingu framkvæmdar á samgönguáætlun sem eru ekki fjármagnaðar á fjárlögum. Vegagerðin telur sig ekki getað skuldbundið ríkissjóð umfram lagaheimildir en tekur undir að framkvæmdirnar eru mikilvægar fyrir sveitarfélagið.



Símafundur með fulltrúum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis þann 10. maí 2017. og var eftirfarandi minnisblað tekið saman að sveitarstjóra eftir símafundinn og sent til fundarmanna, en þar segir:



"Eftir samræður á fundinum er sameiginlegur skilningur á því að með þessu bréfi er vegamálastjóri einungis að segja að Vegagerðin geti ekki flýtt framkvæmd með því að leggja til fé sem ekki hefur verið samþykkt á fjárlögum. Vegagerðin segir hins vegar ekkert um það hvort Hafnarsjóður Dalvíkurbyggðar geti fjármagnað framkvæmdina þar til fé fæst á fjárlögum. Ljóst er að stjórnsýslulega er málflutningur vegamálastjóra réttur þó svo að fulltrúar Dalvíkurbyggðar á fundinum vilji meina að það hefði mátt orða næst síðustu setningu skýrar en gert er í bréfinu. Öllum er ljóst að hvorki Vegagerðin né ráðuneytið geta bundið hendur ríkissjóðs umfram lagaheimildir.

Af samræðum að dæma og það sem Vigdís Ósk hefur eftir ráðherra er ljóst að ríkur vilji er til þess að sveitarfélagið fái stuðning við framkvæmdina í næstu fjárlagagerð enda lögformlega viðurkennd framkvæmdinni á samgönguáætlun 2015-2018."
Lagt fram til kynningar.

7.Austurgarður, ný vigt

Málsnúmer 201705110Vakta málsnúmer

Nú eru hafnar framkvæmdir við Austurgarð, það kallar á að endurskoða þurfi framkvæmd vigtunar afla sem landaður verði frá skipum sem nýta sér framangreindan löndunarkant.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:45.

Nefndarmenn
  • Valdimar Bragason formaður
  • Óskar Óskarsson Varaformaður
  • Ásdís Svanborg Jónasdóttir Aðalmaður
  • Kristján Hjartarson Aðalmaður
  • Hólmfríður Guðrún Skúladóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
  • Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson Starfsmaður
Fundargerð ritaði: Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs