Ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 201705013

Vakta málsnúmer

Veitu- og hafnaráð - 62. fundur - 12.05.2017

Með rafpósti sem sendur var 2. maí 2017, til allra aðildarsveitarfélaga að Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga, er ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga fyrir árið 2016. Samkvæmt 2. mgr. 12. gr. samþykkta samtakanna skal stjórn samþykkja ársreikninga eftir að þeir hafa verið kynntir aðildarsveitarfélögum.



Athugasemdir, ef einhverjar eru, sendist vinsamlega til undirritaðs fyrir fimmtudaginn 24. maí nk.



Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við framlagðan ársreikning.