Umhverfisráð

273. fundur 12. febrúar 2016 kl. 09:00 - 10:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Pálmi Þorsteinsson frá Vegagerðinni og Valur Þór Hilmarsson umhverfisstjóri komu á fundinn kl 09:00 undir þessum lið.

1.Samningur við Vegargerðina. Framkvæmd vetrarþjónustu á helmingamokstursvegum í Dalvíkurbyggð.

Málsnúmer 201301032Vakta málsnúmer

Til umræðu vetrarþjónusta og aðrar framkvæmdir á vegum Vegagerðarinnar í Dalvíkurbyggð 2016.
Ráðið þakkar þeim Pálma og Vali fyrir greinargóða yfirferð á stöðu mála. Pálmi kom með uppfært samkomulag um helmingamokstur og vetrarþjónustu Vegagerðarinnar til undirritunar.

Sviðsstjóra falið að stilla upp samanburði á nokkrum útfærslum á heimreiðamokstri fyrir næsta fund.
Pálmi og Valur viku af fundi kl 09:55
Undir þessum lið kom á fundinn Vilhelm Anton Hallgrímsson slökkvilisstjóri Dalvíkurbyggðar kl. 10:05

2.Leiðir til innheimtu á útlögðum kostnaði við vöktun brunaviðvörunarkerfa.

Málsnúmer 201602014Vakta málsnúmer

Til umræðu tillaga slökkviliðsstjóra á leiðum til innheimtu á útlögðum kostnaði við vöktun brunaviðvörunarkerfa.
Umhverfisráð þakkar Vilhelmi Antoni fyrir greinargóðar skýringar og leggur til við byggðarráð að framlögð gjaldtaka verði innleidd vegna vöktunar á brunaviðvörunarkerfum stofnana.
Vilhelm Anton vék af fundi kl. 10:25

3.Framlenging ákvæðis um B-gatnagerðargjald

Málsnúmer 201512091Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 23. desember 2015, þar sem athygli sveitarfélaga er vakin á því að Alþingi hefur samþykkt frumvarp innanríkisráðherra um framlengingu B-gatnagerðargjalds.



Þessi lagabreyting skiptir eingöngu máli fyrir þau sveitarfélög sem ekki hafa enn lokið framkvæmdum við lagningu bundins slitlags á eldri götur.
Lagt fram til kynningar

4.Fundargerðir 2015

Málsnúmer 201501129Vakta málsnúmer

Til kynningar fundagerð Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra frá 15. desember og 3. janúar síðastliðnum.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við framlagðar fundargerðir HNE.

5.Óheimilar auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis

Málsnúmer 201506003Vakta málsnúmer

Til kynningar eftirfylgni við áður sent erindi frá Umhverfisstofnun vegna skilta utan þéttbýlis.
Ráðið felur sviðsstjóra að senda erindi á þá aðila sem eru með auglýsingarskilti með þjóðvegum innan sveitarfélagsins. Einnig óskar ráðið eftir tillögum sviðsstjóra að reglum um auglýsingarskilti í sveitarfélaginu á næsta fund.

6.Umsókn um byggingar og framkvæmdaleyfi fyrir hönd eigenda 0201 að Hafnarbraut 10, Dalvík.

Málsnúmer 201602065Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi, dags. 5. febrúar 2016, óskar Kristján E. Hjartarsson, fyrir hönd eigenda efri hæðar að Hafnarbraut 10 Dalvík, eftir byggingar -og framkvæmdarleyfi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð samþykkir innsenda umsókn með fyrivara um samþykki meðeigenda í húsinu og einnig skal framkvæmdin grendarkynnt nærliggjandi húsum áður en formlegt leyfi er veitt.

Fundi slitið - kl. 10:45.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs