Fræðsluráð

314. fundur 11. mars 2026 kl. 08:15 - 10:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
  • Emil Júlíus Einarsson varaformaður
  • Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
  • Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
Aðrir sem sitja fund: Elvý G. Hreinsdóttir, Gitta Unn Ármannsdóttir, Ingigerður Lilja Jónsdóttir, Matthildur Matthíasdóttir, Friðrik Arnarson, Ágústa Kristín Bjarnadóttir og Una Dan Pálmadóttir.

1.Skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2026 - 2027

Málsnúmer 202603039Vakta málsnúmer

Stjórnendur skólanna fóru yfir fyrstu drög að skóladagatali skólanna fyrir skólaárið 2026 - 2027.
Fræðsluráð þakkar stjórnendum fyrir yfirferð á skóladagatölum skólanna.

2.Ósk um framlengingu á verksamningi um hádegisverð í leik - og grunnskóla skólaárið 2026 - 2027

Málsnúmer 202603027Vakta málsnúmer

Tekið fyrir minnisblað frá Sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs dags. 04.03.2026
Fræðsluráð gerir ekki athugasemd við minnisblað og vísar málinu inn í Byggðaráð Dalvíkurbyggðar.

3.Frávikagreiningar fyrir fjárhagsárið 2025. Fræðslumál 04.

Málsnúmer 202603040Vakta málsnúmer

Stjórnendur fara yfir frávikagreiningar hjá sínum stofnunum fyrir fjárhagsárið 2025.
Fræðsluráð þakkar stjórnendum fyrir yfirferð á frávikagreiningum fyrir fjárhagsárið 2025.

4.Fjárhagslegt stöðumat fyrir fjárhagsárið 2026. Málaflokkur 04. Fræðslumál

Málsnúmer 202603041Vakta málsnúmer

Stjórnendur og sviðsstjóri fara yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 04. fræðslumál fyrir fjárhagsárið 2026.
Lagt fram til kynningar

5.Árskógarskóli

Málsnúmer 202405081Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fer yfir stöðu mála á verkefninu.
Lagt fram til kynningar

6.Starfsmannamál fyrir skólaárið 2026 - 2027

Málsnúmer 202603044Vakta málsnúmer

Stjórnendur fara yfir stöðu mála varðandi starfsmannahald fyrir næsta skólaár.
Fræðsluráð þakkar stjórnendum fyrir að fara yfir stöðuna á starfsmannamálum fyrir skólaárið 2026 - 2027.

7.Niðurstöður lesferils nemenda í Dalvíkurskóla

Málsnúmer 202411049Vakta málsnúmer

Friðrik Arnarson, skólasjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, fer yfir niðurstöður á lesferli hjá nemendum í Dalvíkurskóla.
Fræðsluráð þakkar Friðriki fyrir góða yfirferð á niðurstöðum á lesferli hjá nemendum í Dalvíkurskóla.

8.Skólapúlsinn - niðurstöður úr Dalvíkurskóla

Málsnúmer 201901018Vakta málsnúmer

Friðrik Arnarson, skólasjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, fer yfir helstu niðurstöður úr Skólapúlsinum í Dalvíkurskóla.
Fræðsluráð þakkar Friðriki fyrir góða yfirferð á niðurstöðum úr Skólapúlsinum sem er könnun hjá nemendum í 6. - 10. bekk og foreldrakönnun sem einnig var tekin.

9.Framlenging á samningi um skólaakstur 2026 - 2027

Málsnúmer 202603009Vakta málsnúmer

Tekið fyrir minnisblað frá Sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs dags. 04.03.2026
Fræðsluráð gerir ekki athugasemd við minnisblað frá Sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs og vísar málinu til Byggðaráðs.

10.Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi.

Málsnúmer 202603042Vakta málsnúmer

Tekið fyrir rafpóstur frá Mennta - og barnamálaráðuneytinu dags. 04. 03. 2026
Lagt fram til kynningar

11.Endurmenntunarsjóður Grunnskóla

Málsnúmer 202603033Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - menningarsviðs, fer yfir umsókn í Endurmenntunarsjóð Grunnskóla.
Fræðsluráði líst vel á umsókn og finnst starfsþróun kennara nauðsynleg.

12.Heimsóknir fræðsluráðs í leik- og grunnskóla

Málsnúmer 201810023Vakta málsnúmer

Fræðsluráð fer í heimsókn í Árskógarskóla.
Fræðsluráð þakkar fyrir góðar móttökur

Fundi slitið - kl. 10:30.

Nefndarmenn
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
  • Emil Júlíus Einarsson varaformaður
  • Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
  • Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs