Styrkveiting úr menningar-og viðurkenningarsjóði 2019

Málsnúmer 201902012

Vakta málsnúmer

Menningarráð - 72. fundur - 07.02.2019

Farið yfir vinnureglur menningarráðs vegna úthlutunar styrkja af framlagi til menningarmála. Í þeim kemur fram á ráðið auglýsir í upphafi árs eftir umsóknum um styrki úr Menningar-og viðurkenningarsjóði menningarráðs Dalvíkurbyggðar fyrir það ár.

Farið yfir drög að auglýsingu um umsóknir í sjóðinn.
Menningarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum breytingar á vinnureglum menningarráðs vegna úthlutunar styrkja af framlagi til menningarmála og vísar þeim til samþykkis í sveitarstjórn.

Menningarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að auglýsinga eftir styrkumsóknum í Menningar-og viðurkenningarsjóð Dalvíkurbyggðar. Auglýsingin fari út 20. febrúar n.k. og birtist á heimasíðu og í staðarblöðum. Umsóknarfrestur renni út þann 15. mars n.k. Sveitarstjóra falið að ganga frá auglýsingum og uppfæra upplýsingar um sjóðinn á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.

Sveitarstjórn - 310. fundur - 19.02.2019

Á 72. fundi menningarráðs þann 7. febrúar 2019 þá var eftirfarandi bókað:
"Farið yfir vinnureglur menningarráðs vegna úthlutunar styrkja af framlagi til menningarmála. Í þeim kemur fram á ráðið auglýsir í upphafi árs eftir umsóknum um styrki úr Menningar-og viðurkenningarsjóði menningarráðs Dalvíkurbyggðar fyrir það ár. Farið yfir drög að auglýsingu um umsóknir í sjóðinn.
Menningarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum breytingar á vinnureglum menningarráðs vegna úthlutunar styrkja af framlagi til menningarmála og vísar þeim til samþykkis í sveitarstjórn. Menningarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að auglýsinga eftir styrkumsóknum í Menningar-og viðurkenningarsjóð Dalvíkurbyggðar. Auglýsingin fari út 20. febrúar n.k. og birtist á heimasíðu og í staðarblöðum. Umsóknarfrestur renni út þann 15. mars n.k. Sveitarstjóra falið að ganga frá auglýsingum og uppfæra upplýsingar um sjóðinn á heimasíðu Dalvíkurbyggðar."

Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu menningarráðs og breytingar á vinnureglum menningarráðs vegna úthlutunar styrkja af framlagi til menningarmála.

Menningarráð - 77. fundur - 27.01.2020

Farið yfir vinnureglur menningarráðs vegna úthlutunar styrkja af framlagi til menningarmála. Í þeim kemur fram að ráðið auglýsir í upphafi árs eftir umsóknum um styrki úr Menningar-og viðurkenningarsjóði menningarráðs Dalvíkurbyggðar fyrir það ár.

Farið yfir drög að auglýsingu um umsóknir í sjóðinn.
Menningarráð felur Gísla Bjarnasyni, sviðsstjóa fræðslu- og menningarsviðs að koma auglýsingu til fjölmiðla.

Menningarráð - 83. fundur - 29.01.2021

Farið yfir vinnureglur varðandi menningarsjóð og auglýsingu
Gísla Bjarnasyni, sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs, er falið að klára auglýsingu.

Menningarráð - 90. fundur - 28.01.2022

Farið yfir vinnureglur varðandi menningarsjóð Dalvíkurbyggðar og auglýsingu vegna styrkveitinga.
Menningarráð felur sviðsstjóra að klára endanlega auglýsingu og koma henni til fjölmiðla.