Landbúnaðarráð

119. fundur 11. júlí 2018 kl. 09:00 - 11:00 í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Jón Þórarinsson Formaður
  • Ingunn Magnúsdóttir varaformaður
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Guðrún Erna Rudolfsdóttir Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Hildur Birna Jónsdóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Guðrún Anna Óskarsdóttir
Undir þessum lið voru boðaðir allir varamenn í landbúnaðarráði.
Eva Björk Guðmundsdóttir, Hólmfríður Margrét Sigurðardóttir og Óskar S Gunnarsson boðuðu forföll.
Sigvaldi Gunnlaugsson mætti.

1.Gagnagátt 2018-2022, landbúnaðarráð

Málsnúmer 201806094Vakta málsnúmer

Kynnt fyrir ráðinu hlutverk kjörinna fulltrúa.
Undir þessum lið komu á fundinn varamaðurinn Sigvaldi Gunnlaugsson, Hólmfríður Margrét Sigurðardóttir, Hildur Birna Jónsdóttir,
Eva Björg Guðmundsdóttir og Óskar S.Gunnarsson boðuðu forföll.
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir kom inn á fundin kl. 09:00 og fór yfir eftirfarandi

a) Farið yfir erindisbréf lanbúnaðarráðs.

b) Farið yfir hlutverk kjörinna fulltrúa, meðal annars þagnarskyldu, trúnað, siðareglur og hæfisreglur. Farið einnig yfir fundarsköp samkvæmt Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar.

c) Ákvörðun um fundartíma ráðsins.



a) Til kynningar.
b) Til kynningar.
c) Samþykkt með 5 atkvæðum að fundartími verði annan fimmtudag í mánuði kl. 9:00.

2.Erindisbréf landbúnaðarráðs.

Málsnúmer 201807048Vakta málsnúmer

Guðrún Pálína vék af fundi kl. 09:45

Til kynningar erindisbréf landbúnaðaráðs 2018-2022.
Ráðið leggur til að erindisbréfið verði endurskoðað samkvæmt umræðum á fundinum og lagt fram á næsta fundi ráðsins.

3.Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð

Málsnúmer 201604102Vakta málsnúmer

Sigvaldi Gunnlaugsson vék af fundi kl. 10:02.

Til kynningar mánaðarleg stöðuskýrsla fjármála landbúnaðarráðs.
Lagt fram til kynningar.

4.Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna stækkunar á skógræktarsvæðinu á lögbýlinu Tungufelli í Svarfaðardal

Málsnúmer 201806027Vakta málsnúmer

Til afgreiðslu umsókn um stækkun á skóræktarsvæði jarðarinnar Tungufells í Svarfaðardal.
Landbúnaðarráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið framkvæmdarleyfi, en bendir á að mikilvægt er að við fyrirhugaða endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins verði mörkuð stefna í skógrækt.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

5.Umsókn um búfjárleyfi

Málsnúmer 201806071Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 19. júní 2018 óskar Patryk Grezegorz eftir búfjárleyfi fyrir 8-10 hænum samkvæmt meðfylgjandi umsókn.
Landbúnaðarráð felur sviðsstjóra að veita leyfi fyrir allt að fimm hænum.
Ráðið minnir á að ekki er heimilt að hafa hana í þéttbýli.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

6.Umsókn um búfjárleyfi

Málsnúmer 201805113Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 30. maí 2018 óskar Hafþór Þórarinsson eftir búfjárleyfi fyrir þrjár landnámshænur.
Landbúnaðarráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Ráðið minnir á að ekki er heimilt að hafa hana í þéttbýli.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

7.Styrkvegir 2018

Málsnúmer 201803053Vakta málsnúmer

Til kynningar úthlutun úr styrkvegasjóði 2018.
Ráðið fagnar styrknum sem varið verður til lagfæringa á brú og vegslóða inn að Heljadalsheiði og Skíðadalsafrétt.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Nefndarmenn
  • Jón Þórarinsson Formaður
  • Ingunn Magnúsdóttir varaformaður
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Guðrún Erna Rudolfsdóttir Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs