Landbúnaðarráð

128. fundur 08. ágúst 2019 kl. 08:15 - 09:00 í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Jón Þórarinsson formaður
  • Ingunn Magnúsdóttir varaformaður
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Hildur Birna Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Guðrún Erna Rúdólfsdóttir boðaði forföll og enginn varamaður kom í hennar stað.

1.Breytingar á reglum um fjármál sveitarfélaga við gildistöku núverandi sveitarstjórnarlaga

Málsnúmer 201904116Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dagsett þann 23. apríl 2019, þar sem kynnt er frumkvæðisathugun ráðuneytisins frá því í janúar 2018 á grundvelli XI. kafla sveitarstjórnarlaga á því hvort og þá hvernig staðið hefði verið að breytingum á fjárhagsáætlunum þeirra sveitarfélaga þar sem misræmi á innsendum fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2016 og ársreikningum þeirra fyrir sama ár nam 5% eða meira. Það voru 26 sveitarfélög og var óskað eftir upplýsingum og skýringum frá hverju þeirra. Athugun ráðuneytisins hefur leitt i ljós að á umræddu ári var töluverður misbrestur á því að leitað væri heimildar sveitarstjórnar fyrir auknum útgjöldum og fjárfestingum áður en til þeirra var stofnað. Þessar niðurstöður leiða í ljós að framkvæmd fjárhagsáætlunar ársins 2016 var ekki í fullu samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga hjá a.m.k. þriðjungi sveitarfélaga landsins. Þeim sveitarfélögum sem tekin voru til skoðunar hefur þegar verið tilkynnt um niðurstöður athugarinnar. Ráðuneytið telur á hinn bóginn einnig mikilvægt að kynna öðrum sveitarfélögum þessa niðurstöðu og hvetja þau til að gæta þess að fjármálastjórn sé ávallt í fullu samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga og reglugerðar um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga nr. 1212/2015. Að síðustu skal það upplýst að ráðuneytið hyggst haustið 2020 gera að nýju könnun á framkvæmd sveitarfélaga að þessu leyti, nú vegna fjárhagsáætlana og ársreikninga 2019. Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar

2.Ósk um breytingu á gangnadögum 2019

Málsnúmer 201906012Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Zophoníasi Inga Jónmundssyni dags. 28. maí 2019 þar sem óskað er eftir breytingum á auglýstum gangnadögum.
Eins og áður hefur komið fram hefur Landbúnaðarráð ekki sett sig upp á móti að bændur smali sín heimaupprekstarlönd á sína ábyrgð vegna sumarslátrunar óháð auglýstum gangnadögum, en taka skal fram að ef komi fram ókunnugt fé við þannig smölun þá skal því komið aftur á fjall.
Landbúnaðarráð hafnar erindi Zophoníasar um að smalanir í heimaupprekstrarlöndum til sumarslátrunar í ágústmánuði teljist til gangnadagsverka að hausti. Hinsvegar skal bent á þann möguleika sem hefur verið notaður í einstaka fjallskiladeildum að ef lítil kindavon er á vissum svæðum og þau svæði mun auðveldari til smölunar en önnur svæði innan sömu deildar, að hafa allt að helmingi fleiri kindur á bakvið hvert gangnaskil á þeim svæðum. Fjallskilanefndir viðkomandi deildar geta tekið ákvarðanir um slíka tilhögun.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

3.Umsókn um breytingu á vegi við Kóngsstaði í Skíðadal

Málsnúmer 201809016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fjármagn úr styrkvegasjóði Vegagerðarinnar vegna tilfærslu á vegslóða við Kóngsstaði sem liggur að Skíðadalsafrétt.
Formaður landbúnaðarráðs hefur með fulltrúum Kóngsstaða afmarkað tiltekið svæði fyrir nýjan vegaslóða.
Sviðsstjóri upplýsti ráðið um að styrkur hafi borist í verkefnið og framkvæmdir á áætlun.

4.Fjallgirðing á Árskógsströnd 2019

Málsnúmer 201902070Vakta málsnúmer

Til umræðu staða endurnýjunar og viðhalds fjallgirðingar á Árskógsströnd 2019
Sviðsstjóri og formaður upplýstu ráðið um framgang verkefnisins miðað við áætlun ársins.

Fundi slitið - kl. 09:00.

Nefndarmenn
  • Jón Þórarinsson formaður
  • Ingunn Magnúsdóttir varaformaður
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Hildur Birna Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs