Íþrótta- og æskulýðsráð

77. fundur 20. apríl 2016 kl. 08:15 - 10:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Jón Ingi Sveinsson formaður
  • Íris Hauksdóttir Aðalmaður
  • Þórunn Andrésdóttir Aðalmaður
  • Zbigniew Kolodziejczyk aðalmaður
  • Kristinn Ingi Valsson formaður
Starfsmenn
  • Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá

1.Umsóknareyðublað vegna umsóknar í afreks- og styrktarsjóð

Málsnúmer 201604067Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti drög að nýju umsóknareyðublaði vegna umsóknar í afreks- og styrktarsjóð íþrótta- og æskulýðsráðs. Íþrótta- og æskulýðsráð taldi mikilvægt að skýra betur út á umsóknareyðublaði hvaða upplýsingum væri verið að leita eftir.



Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir drögin með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og samþykkir að það verði notað næst þegar auglýst verður eftir umsóknum í sjóðinn.

2.Starfsemi Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar 2016

Málsnúmer 201604068Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir stöðu vinnuskóla fyrir sumarið.

Forstöðumaður verður María Bjarnadóttir og vinnutími hennar er frá 1. maí til 31. ágúst.

Flokksstjórar verða:

Bertha Þ Steingrímsdóttir

Dominik Kluca

Karen Ósk Svansdóttir

Martin Kukucka

Signý Jónasdóttir

Sólrún Anna Óskarsdóttir

Stefán Hrafn Stefánsson



Flokksstjórar hefja störf 30. maí.

Gert er ráð fyrir samstarfi við Símey um námskeið flokksstjóra eins og undanfarin ár.

Skráning nemenda stendur yfir til 1. maí.

3.Vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs 2016

Málsnúmer 201601147Vakta málsnúmer

Vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs verður haldinn þriðjudaginn 3. maí í Árskógi. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að boða einn fulltrúa frá hverju íþróttafélagi eða deild.

Engar tillögur hafa borist frá íþróttafélögum um umræðuefni á fundinum en íþrótta- og æskulýðsfulltrúi leggur til að rætt verði um eineltisáætlanir innan íþróttafélaga.

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að óska aftur eftir tillögum um umræðuefni.

4.Uppsögn á starfi

Málsnúmer 201604059Vakta málsnúmer

Hallgrímur Ingi Vignisson hefur sagt upp störfum hjá íþróttamiðstöðinni. Búið er að auglýsa stöðuna lausa til umsóknar og er umsóknarfrestur til og með 26. apríl 2016.

Lagt fram til kynningar.

5.Uppsögn á starfi forstöðumanns Víkurrastar

Málsnúmer 201603128Vakta málsnúmer

Viktor Már Jónasson hefur sagt upp störfum sem forstöðumaður Víkurrastar. Hann mun hætta störfum 1. október 2016.

Lagt fram til kynningar.

6.Ungt fólk og lýðræði 2016

Málsnúmer 201512084Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ályktun frá Ungmennaráðstefnu UMFÍ, Ungt fólk og lýðræði, sem haldin var á Selfossi dagana 16. - 18. mars 2016.



Þar kemur m.a. fram að ráðstefnan skorar á stjórnvöld, jafnt ríki sem sveitarfélög, að leita meira til ungmenna og taka tillit til þeirra skoðana á málefnum samfélagsins, einkum, en ekki eingöngu, þeim er varða ungmennin sjálf. Yfirheiti ráðstefnunnar var Niður með grímuna, geðheilbrigði ungmenna og fjallaði hún um stöðu geðheilbrigðismála barna og ungmenna á Íslandi í dag.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Nefndarmenn
  • Jón Ingi Sveinsson formaður
  • Íris Hauksdóttir Aðalmaður
  • Þórunn Andrésdóttir Aðalmaður
  • Zbigniew Kolodziejczyk aðalmaður
  • Kristinn Ingi Valsson formaður
Starfsmenn
  • Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi