Fræðsluráð

223. fundur 14. febrúar 2018 kl. 08:15 - 10:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Steinunn Jóhannsdóttir formaður
  • Þórunn Andrésdóttir varaformaður
  • Auður Helgadóttir aðalmaður
  • Felix Rafn Felixson aðalmaður
  • Valdemar Þór Viðarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður á fræðslu- og menningarsviði
Dagskrá
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, skólastjóri Krílakots og Þuríður Sigurðardóttir, fulltrúi starfsmanna leikskóla sátu fundinn undir liðum 1-3. Guðríður Sveinsdóttir, fulltrúi starfsmanna grunnskóla, sat fundinn undir liðum 2-6. Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla, sat fundinn undir liðum 2-7 og Gunnþór E. Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla sat fundinn undir liðum 1-5 og lið 8. Freyr Antonsson, fulltrúi foreldra leikskólabarna, kom ekki til fundar og enginn mætti í hans stað.

1.Skortur á leikskólaplássi

Málsnúmer 201801019Vakta málsnúmer

Lagt var fram bréf frá Helgu Írisi Ingólfsdóttur, Helga Einarssyni, Júlíönu Kristjánsdóttur og Ísak Einarssyni sem barst með rafpósti 8. janúar 2018. Bréfið er stílað á fræðsluráð og byggðaráð og er þess efnis að fundin verði lausn á að börn fái leikskólapláss við 9 mánaða aldur. Afgreiðsla byggðaráðs á erindi þeirra var einnig kynnt sem og greinargerð sviðsstjóra og skólastjóra Krílakots sem þeir lögðu fyrir byggðaráð 18. janúar 2018.
Bréfið og afgreiðsla byggðaráðs lögð fram til kynningar. Með vísan í fundargerð byggðaráðs 18. janúar 2018 þá er verið að vinna í starfsmannamálum.
Guðríður og Gísli komu til fundar kl. 8:45

2.Skóladagatöl 2018 - 2019

Málsnúmer 201802034Vakta málsnúmer

Fyrstu drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2018-2019 lögð fram.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Á næsta fundi fræðsluráðs verða dagatöl allra skólanna lögð fram til endanlegrar afgreiðslu.

3.Tillaga um ráðstöfun úr Fræðslusjóði Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 201711050Vakta málsnúmer

Á fundi skólastjóra Dalvíkurskóla, Árskógarskóla og Krílakots með sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs þann 17. janúar 2018 var gerð tillaga að ráðstöfun fjármuna úr Fræðslusjóði Dalvíkurbyggðar nú þegar hann verður lagður niður. Með tilliti til nemendafjölda er lagt að Dalvíkurskóli fái kr. 1.000.000, Krílakot kr. 500.000 og Árskógarskóli kr. 200.000 til kaupa á nýjum kennslugögnum.
Fræðsluráð samþykkir tillöguna með 5 atkvæðum.
Guðrún Halldóra og Þuríður fóru af fundi klukkan 9:05.

4.Sundlaugin í Árskógi

Málsnúmer 201210029Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

5.Nemendur sem hefja grunnskólanám 2018

Málsnúmer 201802027Vakta málsnúmer

Borist hefur skrá frá Samband íslenskra sveitarfélaga yfir þá íbúa í Dalvíkurbyggð sem verða 6 ára á árinu 2018. Skráin fylgdi fundarboði.
Lagt fram til kynningar.
Gunnþór vék af fundi kl. 9:15

6.Námsárangur

Málsnúmer 201503209Vakta málsnúmer

Fundargerðir 46., 47. og 48. fundar starfshóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla fylgdu fundarboði.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
Guðríður fór af fundi kl. 9:20

7.Beiðni um launalaust leyfi skólaárið 2018 - 2019

Málsnúmer 201801086Vakta málsnúmer

Heiðar Davíð Bragason íþróttakennari við Dalvíkurskóla óskar eftir launalausu leyfi skólaárið 2018-2019.
Fræðsluráð samþykkir með 5 atkvæðum að veita Heiðari Davíð Bragasyni launalaust leyfi í 12 mánuði frá 1. ágúst 2018 til 31. júlí 2019.
Gísli fór af fundi kl. 9:25
Gunnþór kom aftur til fundar kl. 9:30

8.Uppsögn á starfi skólastjóra í Árskógarskóla

Málsnúmer 201802052Vakta málsnúmer

Á fundinum lagði Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson skólastjóri Árskógarskóla fram uppsagnarbréf sitt og tekur uppsögnin gildi frá og með 30. júní 2018.
Lagt fram. Fræðsluráð leggur til að staðan verði auglýst sem fyrst.
Gunnþór fór af fundi kl. 9:55.

Fundi slitið - kl. 10:30.

Nefndarmenn
  • Steinunn Jóhannsdóttir formaður
  • Þórunn Andrésdóttir varaformaður
  • Auður Helgadóttir aðalmaður
  • Felix Rafn Felixson aðalmaður
  • Valdemar Þór Viðarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður á fræðslu- og menningarsviði