Fræðsluráð

217. fundur 14. júní 2017 kl. 08:15 - 11:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Arna Gerður Hafsteinsdóttir varamaður
  • Auður Helgadóttir aðalmaður
  • Felix Rafn Felixson aðalmaður
  • Valdemar Þór Viðarsson aðalmaður
  • Þórunn Andrésdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
  • Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
Steinunn Jóhannsdóttir, formaður, boðaði forföll og mætti Arna Gerður Hafsteinsdóttir í hennar stað. Lilja B. Ólafsdóttir, varaformaður, boðaði forföll og mætti Þórunn Andrésdóttir í hennar stað. Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs, stýrði fundinum.

Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, skólastjóri Krílakots, sat fundinn undir liðum 1 og 2. Gunnþór E. Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla, sat fundinn undir liðum 2-6, Friðrik Arnarson, deildarstjóri Dalvíkurskóla sat fundinn undir liðum 2-7.

Þuríður Sigurðardóttir, fulltrúi starfsmanna leikskólanna, Freyr Antonsson, fulltrúi foreldra leikskólabarna og Guðríður Sveinsdóttir, fulltrúi grunnskólakennara komu ekki til fundar og enginn kom í þeirra stað.

1.Ytra mat Menntamálastofnunar- Umbótaáætlun Krílakots

Málsnúmer 201612025Vakta málsnúmer

Leikskólastjóri Krílakots, Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, lagði fram endurskoðaða umbótaáætlun Krílakots. Þeirri fyrri var skilað til Menntamálastofnunar þegar ytra mat þeirra á leikskólanum lá fyrir. Breytingar taka mið af ábendingum sem bárust frá Menntamálastofnun í kjölfarið.
Lagt fram til kynningar. Engar athugasemdir komu fram.
Gunnþór E. Gunnþórsson og Friðrik Arnarson komu til fundar klukkan 8:35

2.Innra mat leik- og grunnskóla 2016-2017

Málsnúmer 201705173Vakta málsnúmer

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla, lagði fram innra mat skólans fyrir skólaárið 2016-2017. Innra mat Dalvíkurskóla og Krílakots verður lagt fram á næsta fundi ráðsins. Dóróþea, kennsluráðgjafi, kynnti nýjar leiðbeiningar um innra mat sem Mennta- og menningarmálaráðuneytið gaf út í nóvember 2016.
Fræðsluráð þakkar Gunnþóri og Dóróþeu fyrir kynningarnar. Engar athugasemdir komu fram.
Guðrún Halldóra fór af fundi klukkan 9:10.

3.Vegvísir 1, úrbótaáætlun á starfsumhverfi í grunnskólum

Málsnúmer 201704026Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Hlynur Sigursveinsson, kynnti niðurstöðu könnunar sem lögð var fyrir grunnskólakennara í Dalvíkurbyggð tengt Vegvísi 1 og tillögur til úrbóta sem byggja á niðurstöðunni. Niðurstöðurnar hafa verið sendar Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Lagt fram til kynningar og umræðu.

4.Kostnaðaruppbygging íslenskra grunnskóla

Málsnúmer 201706034Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti niðurstöður úr rannsókn Vífils Karlssonar og Sveins Agnarssonar sem barst fyrri hluta árs 2017 á því hvaða þættir útskýra kostnaðaruppbyggingu íslenskra grunnskóla.
Lagt fram til kynningar.

5.Tilboð í skólamat 2017 - 2019

Málsnúmer 201704028Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs kynnti tilboð sem barst í skólamat í Árskógarskóla og Dalvíkurskóla næstu þrjú árin, 2017 - 2020. Eitt tilboð barst frá Blágrýti ehf. Frestur skólaskrifstofu til að yfirfara gögnin og ljúka samningagerð rennur út 24. júlí.
Fræðsluráð samþykkir með 5 atkvæðum að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að vinna að gerð samnings við Blágrýti ehf á grundvelli tilboðs þeirra og í samræmi við umræður á fundinum.

6.Tilboð í skólaakstur 2017-2019

Málsnúmer 201704027Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs kynnti tilboð sem barst í skólaakstur í Dalvíkurbyggð næstu þrjú árin, 2017 - 2020. Eitt tilboð barst frá Ævari og Bóasi ehf. Skólaskrifstofa hefur frest til 24. júní til að yfirfara gögn og ljúka samningsgerð.
Fræðsluráð samþykkir með 5 atkvæðum að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að ganga frá samningi á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.
Gunnþór fór af fundi klukkan 10:30.

7.Námsárangur

Málsnúmer 201503209Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdu fundargerðir 39. og 40. fundar starfshóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
Friðrik fór af fundi klukkan 10:40.

8.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201706032Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók

Fundi slitið - kl. 11:30.

Nefndarmenn
  • Arna Gerður Hafsteinsdóttir varamaður
  • Auður Helgadóttir aðalmaður
  • Felix Rafn Felixson aðalmaður
  • Valdemar Þór Viðarsson aðalmaður
  • Þórunn Andrésdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
  • Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður Fræðslu- og menningarsviðs