Fræðsluráð

212. fundur 11. janúar 2017 kl. 08:15 - 10:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Steinunn Jóhannsdóttir formaður
  • Lilja Björk Ólafsdóttir varaformaður
  • Felix Rafn Felixson Aðalmaður
  • Auður Helgadóttir Aðalmaður
  • Kristinn Ingi Valsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Dóróþea Reimarsdóttir kennsluráðgjafi
Dagskrá
Drífa Þórarinsdóttir, skólastjóri Krílakots, Þuríður Sigurðardóttir, fulltrúi starfsmanna leikskólanna og Freyr Antonsson, fulltrúi foreldra leikskólabarna sátu fundinn undir liðum 1 og 2.
Gunnþór E. Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla, boðaði forföll og enginn kom í hans stað.
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla og Guðríður Sveinsdóttir, fulltrúi starfsmanna grunnskólanna, boðuðu forföll og enginn kom í þeirra stað.

1.Ytra mat Menntamálastofnunar- Leikskólinn Krílakoti

Málsnúmer 201612025Vakta málsnúmer

Drífa Þórarinsdóttir, skólastjóri Krílakots, kynnti drög að aðgerðaáætlun um úrbætur í framhaldi af niðurstöðum ytra mats Menntamálastofunar sem gert var s.l. haust. Áætlunina þarf að senda stofnuninni fyrir 1. febrúar 2017.
Fræðsluráð felur Drífu að ljúka aðgerðaáætluninni í samræmi við umræður á fundinum og senda Menntamálastofnun áður en skilafrestur rennur út. Lokaskjalið verði lagt fyrir næsta fund til kynningar.



Þar sem þetta er síðasti fræðsluráðsfundur sem Drífa Þórarinsdóttir, leikskólastjóri, situr vill fræðsluráð þakka Drífu fyrir vel unnin störf í þágu Dalvíkurbyggðar og óskar henni velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.

2.Persónuverndarreglur

Málsnúmer 201612051Vakta málsnúmer

Á fundi sínum 21. desember 2016 vísaði Byggðaráð bréfi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettu þann 6. desember, til úrvinnslu í fræðsluráði og UT-teymi Dalvíkurbyggðar. Í bréfinu kemur m.a. fram að starfshópur um skoðun á skráningum upplýsinga um nemendur grunnskóla í rafræn upplýsingakerfi hefur lokið störfum. Sveitarfélög eru hvött til að hefjast þegar handa við að aðlaga framkvæmd við skráningu og meðferð persónuupplýsinga í grunnskólum í samræmi við tillögur starfshópsins.
Fræðsluráð felur Hlyni Sigursveinssyni, sviðsstjóra fræðslu og menningarmála, að vinna málið áfram og leggur til að Dalvíkurbyggð tilnefni væntanlegan persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins hið fyrsta til að vinna að málinu með honum og UT teyminu. Sviðsstjóri upplýsi fræðsluráð um framgang mála og næstu skref að loknum fyrsta fundi hans með UT teyminu.
Drífa, Freyr og Þuríður fóru af fundi klukkan 9:30.

3.Nýjar úthlutunarreglur Námsgagnasjóðs

Málsnúmer 201611119Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 16. nóvember 2016 þar sem kynntar eru nýjar úthlutunarreglur Námsgagnasjóðs. Meðal þess sem fram kemur í bréfinu er að framvegis bera rekstraraðilar grunnskóla ábyrgð á að grunnskólar nýti fjármagn í samræmi við úthlutunarreglur sjóðsins.
Lagt fram til kynningar.

4.Námsárangur

Málsnúmer 201503209Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdu fundargerðir 29., 30. og 31. fundar vinnuhóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:30.

Nefndarmenn
  • Steinunn Jóhannsdóttir formaður
  • Lilja Björk Ólafsdóttir varaformaður
  • Felix Rafn Felixson Aðalmaður
  • Auður Helgadóttir Aðalmaður
  • Kristinn Ingi Valsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Dóróþea Reimarsdóttir kennsluráðgjafi