Félagsmálaráð

207. fundur 14. mars 2017 kl. 08:15 - 11:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Silja Pálsdóttir formaður
  • Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
  • Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
  • Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
  • Jóhannes Tryggvi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Eyrún Rafnsdóttir Félagsmálastjóri
Dagskrá

1.Til umsagnar frumvarp til laga um breyt. á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis), 106. mál.

Málsnúmer 201703023Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá nefndarsviði Alþingis dags. 3. mars 2017. Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl. Óskað er umsagnar sveitarfélaga.
Félagsmálaráð hvetur þingmenn til að hafna frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um breytingu á lögum (86/2011) um verslun með áfengi og tóbak. Undanfarin ár hefur áhersla verið lögð á aukna forvarnarfræðslu barna og unglinga í sveitarfélaginu. Rannsóknir benda til að aukið aðgengi að áfengi leiði til aukinnar neyslu meðal barna og unglinga. Alþingi hefur nýlega lögfest Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Það er þversagnarkennt að auðvelda aðgengi að áfengi sem ætla má að gæti haft neikvæð áhrif á líf og uppvöxt barna og ungmenna.

2.Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð

Málsnúmer 201604102Vakta málsnúmer

Farið var yfir fjárhagsáætlun félagsmálasviðs fyrir árið 2016. Einnig var farið yfir frávikagreiningu vegna fjárhagsáætlunar ársins 2016.
Lagt fram til kynningar.
Jóhannes vék af fundi yfir afgreiðslu málsins kl. 8:35 og kom inn á fund kl. 8:40

3.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201702089Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál nr. 201702089
Bókað í trúnaðarmálabók

4.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201702101Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál nr. 201702101
Bókað í trúnaðarmálabók

5.Heimsókn í Iðjuna Siglufirði

Málsnúmer 201703048Vakta málsnúmer

Farið var í heimsókn í Iðjuna á Siglufirði.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Nefndarmenn
  • Silja Pálsdóttir formaður
  • Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
  • Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
  • Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
  • Jóhannes Tryggvi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Eyrún Rafnsdóttir Félagsmálastjóri