Byggðaráð

762. fundur 17. desember 2015 kl. 13:00 - 15:04 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
  • Kristján Guðmundsson Varaformaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Frá umhverfis- og tæknisviðs; Snjómokstur 2015; greining og staða á kostnaði.

Málsnúmer 201505077Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs kl. 13:00 Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs og Valur Þór Hilmarsson, umhverfisstjóri.



Á 761. fundi byggðaráðs þann 10. desember 2015 var eftirfarandi bókað:

"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, bréf dagsett þann 8. desember 2015, þar sem fram kemur að samkvæmt þeim gögnum sem fyrir liggja má gera ráð fyrir að þeir fjármunir sem eftir eru á fjárhagsáætlun 2015 til snjómoksturs séu nánast uppurnir. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 10.000.000 á 10600-4948 vegna snjómoksturs í desember.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofagreinda beiðni um viðauka að upphæð kr. 10.000.000, vísað á lið 10600-4948 og til lækkunar á handbæru fé. Byggðaráð óskar eftir greiningu og stöðu á kostnaði ársins 2015 vegna snjómoksturs fyrir næsta fund byggðaráðs. "



Á fundinum fóru sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs og umhverfisstjóri yfir greiningu þeirra og stöðu á kostnaði ársins 2015 vegna snjómoksturs og hálkuvarna.



Til umræðu ofangreint.



Valur vék af fundi kl. 13:40.
Lagt fram til kynningar.

2.Málefni Húsabakka

Málsnúmer 201408038Vakta málsnúmer

Á 757. fundi byggðaráðs þann 5. nóvember 2015 var eftirfarandi bókað:

"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Auðunn Bjarni Ólafsson, framkvæmdastjóri Húsabakka ehf., Sigurjóna Ólöf Högnadóttir, og Elín Gísladóttir, stjórnarmaður í Húsabakka ehf., kl. 16:20, Á 756. fundi byggðaráðs þann 29. október 2015 var eftirfarandi bókað: "Á 740. fundi byggðaráðs þann 9. júlí 2015 var minnisblað sveitarstjóra og framkvæmdastjóra Húsabakka ehf. dagsett þann 8. júlí 2015 lagt fram til kynningar. Byggðaráð samþykkti samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda inn erindi til ríkisins er varðar eignarhluta þess í byggingum á Húsabakka. Sveitarstjóri gerði grein fyrir þeim upplýsingum sem hefur verið aflað á milli funda. Lagt fram til kynningar. " Til umræðu ofangreint. Framkvæmdastjóri Húsabakka ehf. lagði fram samantekt til byggðaráðs, dagsett þann 5. nóvember 2015. Auðunn Bjarni, Sigurjóna og Elín viku af fundi kl. 16:56.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda hluthafafundi Húsabakka ehf. erindi fyrir hönd byggðaráðs í samræmi við umræður á fundinum."



Hugmynd að samkomulagi við Húsabakka ehf. var send til stjórnar Húsabakka í bréfi dagsettu þann 18. nóvember 2015.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafbréf dagsett þann 14. desember 2015 sem er svar Húsabakka ehf. við ofangreindu erindi Dalvíkurbyggðar. Fram kemur meðal annars að almennur hluthafafundur Húsabakka ehf. samþykkti að fela stjórn og framkvæmdarstjóra að ganga til samninga við Dalvíkurbyggð á grundvelli erindis frá 18/11 2015.



Börkur Þór vék af fundi kl. 13:58.



Til umræðu ofangreint.



Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, í samráði við lögmann sveitarfélagsins, að vinna drög að samkomulagi við Húsabakka ehf. Stefnt skuli að því að drögin verði tekin fyrir á fundi byggðaráðs 7. janúar 2016.

3.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201512026Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

4.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201512059Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

Fundi slitið - kl. 15:04.

Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
  • Kristján Guðmundsson Varaformaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs