Byggðaráð

805. fundur 08. desember 2016 kl. 13:00 - 15:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
  • Kristján Guðmundsson Varaformaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Samningur um afnot af vatns út Þorvaldsdalsá á milli Laxós ehf. og hins vegar eigenda að aðliggjandi jörðum/landspildum sem liggja að Þorvaldsdalsá í Dalvíkurbyggð, drög

Málsnúmer 201608099Vakta málsnúmer

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 13:00.



Á 284. fundi umhverfisráðs þann 15. nóvember s.l. var eftirfarandi bókað:

"Með erindi dags. 6. nóvember 2016 óskar Guðmundur Valur Stefánsson fyrir hönd Laxós ehf eftir lóð fyrir seiðaeldiasstöð við ósa Þorvaldsdalsár á Árskógssandi.

Umhverfisráði Dalvíkurbyggðar tekur jákvætt í umsóknina, en getur ekki veitt umbeðna lóð fyrr en skipulag svæðisins liggur fyrir. Ráðið leggur áherslu á að í upphafi skipulagsferlisins sé haft samráð við aðliggjandi nágranna. Samþykkt með fimm atkvæðum."





Til umræðu drög að samningi um afnot af vatni úr Þorvaldsdalsá í Dalvíkurbyggð á milli annars vegar Laxós ehf. kt. 671016-2110, og hins vegar eigenda að aðliggjandi jörðum/landspildum sem liggja að Þorvaldsdalsá í Dalvíkurbyggð vegna byggingar og rekstur Laxós á fiskeldisstöð.



Til umræða ofangreint. Börkur vék af fundi kl. 13:21.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að vinna áfram að málinu. Byggðaráð lítur jákvæðum augum á þetta verkefni.

2.Fjárhagsáætlun 2016; tillaga að heildarviðauka III

Málsnúmer 201611092Vakta málsnúmer

Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti tillögu að heildarviðauka við fjárhagsáætlun III þar sem búið er að taka inn í eftirfarandi áður samþykkta viðauka:



a) Málsnr. 201504045:Viðauki 20; Sala á færanlegri kennslustofu.

Málsnr. 201608023:Viðauki 22; Sala á Lokastíg 1, íbúð 0203.

Málsnr. 201608057:Viðauki 25; Sala á Öldugötu 4a- 4d.

Málsnr. 201503150: Viðauki 26; Sala á Húsabakka.

Málsnr. 201609041: Viðauki 27; Sala á Lokastíg 1, íbúð 0304

Málsnr. 201609079; Viðauki 28; Acute búnaður slökkviliðs - hefur ekki áhrif á áætlun.

Málsnr. 201610028; Viðauki 29; Greið leið ehf.; aukning á hlutafé.

Máls nr. 201602098; Viðauki 30; Snjómokstur

Málsnr. 201610067; Viðauki 31; Breytingar á Skrifstofum Dalvíkurbyggðar.



b) Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig minnisblað frá sviðstjóra veitu- og hafnasviðs, dagsett þann 7. desember 2016; þar sem óskað er eftir breytingu á fjárfestingaáætlun Hafnasjóðs vegna löndunaraðstöðu, lækkun um kr. 21.000.000.



Undir þessum lið kom á fund Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri veitu- og hafnasviðs kl. 13:55.



Til umræðu ofangreint.



Þorsteinn vék af fundi kl. 14:00.



c) Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsettur þann 7. desember 2016, þar sem lagt er til að 80% áætlaður kostnaður vegna breytinga á Skrifstofum verði eignfært og 20% verði fært á viðhald, sbr. viðauki #31 hér að ofan.



d) Í fjárhagsáætlun 2016 er gert ráð fyrir að verðbólga ársins verði 2,50% en skv. endurskoðaðri Þjóðhagsspá frá 4. nóvember 2016 er gert ráð fyrir 1,8% verðbólgu á árinu 2016. Lagt er til að sú áætlun verði notuð í fjárhagsáætlunarlíkani með heildarviðauka III.





Til umræðu ofangreint.
a) - d) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögur að heildarviðauka III samkvæmt liðum a. - d. og tillögu að heildarviðauka eins og hann liggur fyrir og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.

3.Uppgjör til ríkisins vegna sölu á Húsabakka; sala á eignarhluta Dalvíkurbyggðar í Öldugötu 1 til ríkisins.

Málsnúmer 201503150Vakta málsnúmer

Á 791. fundi byggðaráðs þann 8. september 2016 var meðal annars eftirfarandi bókað:



"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum sölu á húseignunum á Húsabakka og að taka hæsta tilboði sem er frá Stórvali kt. 470605-1460, með fyrirvara á staðfestingu á samþykki ríkisins hvað varðar sölu á sínum eignarhluta. Með vísan í samskipti við fjármála- og efnahagsráðuneytið er gengið út frá því að gerð verði makaskipti á 15% eignarhlut Dalvíkurbyggðar í Öldugötu 1 og þátttöku ríkisins í greiðslu til Húsabakka ehf. í samræmi við eignarhluta ríkisins í húseignunum á Húsabakka."





Með fundarboði fylgdu eftirtalin gögn:

a) Undirritað samkomulag á milli Dalvíkurbyggðar og Ríkissjóðs Íslands vegna sölu á Húsabakkaskóla, dagsett þann 1. desember 2016.

b) Undirritað afsal á milli Dalvíkurbyggðar og Ríkissjóðs íslands vegna sölu á eignarhluta Dalvíkurbyggðar í Öldugötu 1.

a) Byggðaráð staðfestir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samkomulag um uppgjör á milli Dalvíkubyggðar og Ríkissjóðs um sölu á Húsabakka.

b) Byggðaráð staðfestir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi afsal milli Dalvíkurbyggðar og Ríkissjóðs um sölu á eignarhluta Dalvíkurbyggðar í Öldugötu 1.

4.Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð

Málsnúmer 201604102Vakta málsnúmer

Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti stöðuskýrslu reksturs fyrir janúar - nóvember 2016, bókfærð staða í samanburði við fjárhagsáætlun 2016.
Lagt fram til kynningar.

5.Afsláttur fasteignaskatts 2017 til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega

Málsnúmer 201611065Vakta málsnúmer

Á 804. fundi byggðaráðs þann 17. nóvember 2016 var eftirfarandi bókað:



"Með fundarboði fylgdi gildandi reglur sveitarfélagsins um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar. Ekki eru tillögur um efnislega breytingar en byggðaráð þarf að taka afstöðu til fjárhæðar afsláttar af fasteignaskatti sem og fjárhæð tekjutengingar, annars vegar vegna einstaklinga og hins vegar vegna hjóna og sambýlisfólks. Sveitarstjórn er heimilt að lækka eða fella niður fasteignaskatt sem tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða en skylt er að setja þar sérstakar reglur um. Heildarfjárhæð afsláttar árið 2016 var kr. 2.227.132, áætlað kr. 2.121.000. Til umræðu ofangreint.

Frestað."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hækka fjárhæð afsláttar um 3,9% og tekjuviðmið um 3,9%.

6.Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn um nýtt rekstarleyfi

Málsnúmer 201612014Vakta málsnúmer

Tekið fyri erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, rafbréf dagsett þann 2.12.2016, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Júlíusar Júlíussonar, kt. 020266-4819, fyrir hönd Þau bæði ehf., kt. 411208-1840, hvað varðar nýtt rekstrarleyfi til sölu veitinga í Þulu veisluþjónustu, Hafnartorgi á Dalvik. Um er að ræða flokk II.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn með fyrirvara um umsagnir slökkviliðsstjóra og byggingafulltrúa, sem liggja ekki fyrir.

7.Frá Velferðarráðuneytinu; Drög að leiðbeinandi reglum um sérstakan húsnæðisstuðning send til umsagnar.

Málsnúmer 201612017Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá Velferðarráðuneytinu, dagsettur þann 30.nóvember 2016, þar sem fram kemur að þann 1. janúar næstkomandi taka gildi ný lög um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, sem samþykkt voru á Alþingi hinn 16. júní sl. Er þar m.a. kveðið á um breytingu á 45. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 þannig að sveitarfélögum verði skylt að veita sérstakan húsnæðisstuðning, sem komi í stað sérstakra húsaleigubóta, og að ráðherra skuli, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, gefa út leiðbeinandi reglur til sveitarstjórna um framkvæmd stuðnings ásamt viðmiðunarfjárhæðum. Stefnt er að því að leiðbeiningarnar liggi fyrir við gildistöku laganna.



Samráðsnefnd um húsnæðismál, sem skipuð var 6. september sl., á grundvelli samkomulags um endurskoðaða verka- og kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga vegna breytinga á fyrirkomulagi húsnæðisstuðnings við leigjendur, hefur unnið meðfylgjandi drög að leiðbeinandi reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Óskað er eftir athugasemdum við meðfylgjandi drög og að þær berist eigi síðar en föstudaginn 9. desember næstkomandi.



Ti umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar og vísað til félagsmálaráðs.

8.Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Framtíðarskipan húsnæðismála

Málsnúmer 201612002Vakta málsnúmer

Tekið fyrir bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 1. desember 2016, þar sem fram kemur að á fundi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 25. nóvember s.l. var lögð fram fundargerð 24. fundar skipulagsmálanefndar sambandsins frá 14. nóvember 2016. Með vísaðn til töluliðar 4 gr. í fundargerð nefndarinnar var eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða:



"Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til þess að hraða vinnu við gerð húsnæðisáætlana á grundvelli laga um almennar íbúðir enda eru slíkar áætlanir hugsaðar sem stjórntæki fyrir sveitarfélaög. Jafnframt er mikilvægt að bæta að gengi að tölulegum upplýsingum um húsnæðismál".



Lagt fram til kynningar.

9.Frá Landsnet ehf; Kerfisáætlun 2015-2024

Málsnúmer 201501001Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi rafpóstur frá Landsneti, dagsettur þann 18. nóvember 2016, þar sem fram kemur að fyrir liggur tillaga að kerfisáætlun 2016-2025 um áætlaða þróun notkunar og framleiðslu raforku tengdri flutningskerfinu, auk þeirrar uppbyggingar sem ráðgerð er á meginflutningskerfinu. Landsnet kynnir nú tillögu að kerfisáætlun í samræmi við raforkulög nr. 65/2003 m.s.br. og umhverfisskýrslu í samræmi við lög nr. 105/2006, en í umhverfisskýrslu lagt er mat á umhverfisáhrif kerfisáætlunar.



Frestur til að gera athugasemdir eða koma með ábendingar við tillögurnar er til og með 30. desember 2016. Það er von Landsnets að flestir kynni sér efni kerfisáætlunar og umhverfisskýrslu.



Lagt fram til kynningar.

10.Frá Eyþingi; ályktanir frá aðalfundi

Málsnúmer 201610031Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá Eyþingi, dagsettur þann 18. nóvember 2016, þar sem kynntar eru ályktanir frá aðalfundi Eyþings 2016.
Lagt fram til kynningar.

11.Frá Eyþingi; Fundargerðir stjórnar nr. 287 og nr. 288

Málsnúmer 201602006Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdu fundargerðir stjórnar Eyþings nr. 287 frá 26.10.2016, og nr. 288 frá 23.10.2016.
Lagt fram til kynningar.

12.Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; fundargerð stjórnar nr. 844.

Málsnúmer 201603022Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi fundargerð stjórnar Sambandsins nr. 844. frá 25. nóvember.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:45.

Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
  • Kristján Guðmundsson Varaformaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs