Frá Velferðarráðuneytinu; Drög að leiðbeinandi reglum um sérstakan húsnæðisstuðning send til umsagnar.

Málsnúmer 201612017

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 805. fundur - 08.12.2016

Tekinn fyrir rafpóstur frá Velferðarráðuneytinu, dagsettur þann 30.nóvember 2016, þar sem fram kemur að þann 1. janúar næstkomandi taka gildi ný lög um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, sem samþykkt voru á Alþingi hinn 16. júní sl. Er þar m.a. kveðið á um breytingu á 45. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 þannig að sveitarfélögum verði skylt að veita sérstakan húsnæðisstuðning, sem komi í stað sérstakra húsaleigubóta, og að ráðherra skuli, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, gefa út leiðbeinandi reglur til sveitarstjórna um framkvæmd stuðnings ásamt viðmiðunarfjárhæðum. Stefnt er að því að leiðbeiningarnar liggi fyrir við gildistöku laganna.



Samráðsnefnd um húsnæðismál, sem skipuð var 6. september sl., á grundvelli samkomulags um endurskoðaða verka- og kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga vegna breytinga á fyrirkomulagi húsnæðisstuðnings við leigjendur, hefur unnið meðfylgjandi drög að leiðbeinandi reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Óskað er eftir athugasemdum við meðfylgjandi drög og að þær berist eigi síðar en föstudaginn 9. desember næstkomandi.



Ti umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar og vísað til félagsmálaráðs.