Atvinnumála- og kynningarráð

19. fundur 04. maí 2016 kl. 13:00 - 16:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson Formaður
  • Sölvi H Hjaltason Varaformaður
  • Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
  • Bára Höskuldsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
  • Margrét Víkingsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Margrét Víkingsdóttir upplýsingafulltrúi
Dagskrá
Jón Steingrímur Sæmundsson, aðalmaður, boðaði forföll og hans varamaður, Guðmundur St. Jónsson, boðaði einnig forföll.

1.Heimsóknir í fyrirtæki.

Málsnúmer 201407048Vakta málsnúmer

Atvinnumála- og kynningarráð hefur það að stefnu sinni að heimsækja fyrirtæki í sveitarfélaginu eða að fá hópa fyrirtækja í heimsókn til sín.



Frestað.

2.Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð

Málsnúmer 201604102Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnir mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir þær deildir sem tilheyra atvinnumála- og kynningarráði.



Lagt fram til kynningar.

3.Atvinnuuppbygging í Dalvíkurbyggð

Málsnúmer 201605002Vakta málsnúmer

Atvinnumála- og kynningarráð lýsir ánægju sinni með alla þá atvinnuuppbyggingu sem á sér stað í sveitarfélaginu sem sýnir glöggt að almennur vöxtur á sér stað á svæðinu. Atvinnuhúsnæði hefur verið að rísa á Hauganesi, Árskógssandi, Árskógsströnd, Svarfaðardal og á Dalvík. Einnig er ánægjulegt að fyrir liggja umsóknir um atvinnulóðir.

4.Hvatasamningur, umsókn.

Málsnúmer 201602102Vakta málsnúmer

Á síðsta fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 6. apríl 2016 var eftirfarandi bókað:



"Tekin fyrir umsókn um gerð hvatasamnings milli Þorsteins Más Aðalsteinssonar, fyrir hönd fyrirtækisins Erlent ehf kt. 711008-1950, og Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 17.02.2016.



Atvinnumála- og kynningarráð lýsir yfir ánægju sinni með umsóknina og felur upplýsingafulltrúa að vinna áfram að málinu á milli funda, miðað við umræður á fundinum. "



Upplýsingafulltrúi leggur fram umbeðin gögn frá Erlent ehf. auk þess að leggja fyrir tillögu að hvatasamningi milli Dalvíkurbyggðar og Erlent ehf.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að ráðið muni leggja til við byggðaráð að gerður verði hvatasamningur við Erlent ehf. Atvinnumála- og kynningarráði er ljóst að fjárhæðir vegna hvatasamnings eru ekki á fjárhagsáætlun þessa árs.



Áður en að gengið verður frá samningsdrögum þarf Erlent ehf að leggja fram nánari útlistun á gjöldum til Dalvíkurbyggðar sem til falla á næstu þremur árum.



Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

5.Atvinnu- og auðlindastefna

Málsnúmer 201601026Vakta málsnúmer

Á síðasta fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 6. apríl var eftirfarandi bókað:



"Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 5 atkvæðum að SVOT greiningin verði hluti af atvinnu- og auðlindastefnu sveitarfélagsins og að unnið verði áfram með hana á milli funda ráðsins."



Upplýsingafulltrúi leggur fram tillögu að SVOT greiningu fyrir Dalvíkurbyggð.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með fjórum atkvæðum SVOT greininguna eins og hún liggur fyrir með breytingum sem hafa verið gerðar á milli funda.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson Formaður
  • Sölvi H Hjaltason Varaformaður
  • Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
  • Bára Höskuldsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
  • Margrét Víkingsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Margrét Víkingsdóttir upplýsingafulltrúi