Ungmennaráð

13. fundur 02. júní 2017 kl. 08:00 - 09:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Hera Margrét Guðmundsdóttir Aðalmaður
  • Patrekur Óli Gústafsson Aðalmaður
  • Eiður Máni Júlíusson Aðalmaður
  • Birna Kristín Kristbjörnsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Rúnar Gylfason starfsmaður
Fundargerð ritaði: Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar
Dagskrá
Daði Mar Flosason sat fundinn sem varamaður fyrir Björgvin Pál sem boðaði forföll.

1.Hjólabraut

Málsnúmer 201706004Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti fyrir ráðinu Modular Pump track hjólabrautir frá Lex Games.
Ungmennaráð telur mikilvægt að bæta aðstöðu til hjólabretta- og hjólaiðkunar á svæðinu. Slík hjólabraut myndi klárlega gera það. Ungmennaráð mælir eindregið með því að skoðað verði samhliða fjárhagsáætlun næsta árs að keypt verði slík braut og mælir þá með því að keyptur verði "Fjarkinn". Ungmennaráð telur eðlilegt að verkefnið "Heilsueflandi Samfélag" tengist slíkri uppbyggingu og óskar eftir því að stýrihópur um verkefnið fjalli um málið.

2.17. júní hátíðarhöld 2017

Málsnúmer 201706005Vakta málsnúmer

Farið var yfir dagskrádrög vegna hátíðarhalda á 17. júní. Dagskráin er með hefðbundu sniði, nema að í ár verður ekki hægt að halda sundlaugarskemmtun, þar sem sundlaugin er lokuð vegna framkvæmda. Ungmennaráð leggur til að sundlaugarskemmtunin verði færð til og haldið upp á opnun eftir endurbætur með sambærilegum hætti og verið hefur á 17. júní. Einnig leggur ungmennaráð til að skoðað verði hvort hægt verði að fá slökkvilið, lögreglu eða björgunarsveit til að sýna bíla og tæki og jafnvel bjóða upp á hring með bílunum.

Fundi slitið - kl. 09:30.

Nefndarmenn
  • Hera Margrét Guðmundsdóttir Aðalmaður
  • Patrekur Óli Gústafsson Aðalmaður
  • Eiður Máni Júlíusson Aðalmaður
  • Birna Kristín Kristbjörnsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Rúnar Gylfason starfsmaður
Fundargerð ritaði: Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar