Sveitarstjórn

254. fundur 27. desember 2013 kl. 12:00 - 13:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
  • Jóhann Ólafsson Aðalmaður
  • Svanfríður Inga Jónasdóttir Aðalmaður
  • Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
  • Anna Guðný Karlsdóttir Aðalmaður
  • Óskar Óskarsson Aðalmaður
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
Kristján E. Hjartarson mætti ekki á fundinn og boðaði ekki forföll sem og varamaður hans.

1.Byggðarráð Dalvíkurbyggðar - 686, frá 19.12.2013.

2.Álagning fasteignaskatts- og fasteignagjalda 2014.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Málsnúmer 201309008Vakta málsnúmer

Á 682. fundi byggðarráðs þann 14. nóvember 2013 samþykkti byggðarráð samhljóða með 3 atkvæðum tillögu til sveitarstjórnar hvað varðar álagningu fasteignaskatts og fasteignagjalda fyrir árið 2014.

Á 251. fundi sveitarstjórnar þann 19. nóvember 2013 var afgreiðslu á ákvörðun sveitarstjórnar vegna álagningar fasteignaskatts- og fasteignagjalda 2014 frestað þar sem sveitarstjórnar samþykkti í upphafi fundar að endurskoða þjónustugjaldskrár fyrir árið 2014.

Á 252. fundi sveitarstjórnar þann 3. desember s.l. voru til umfjöllunar og afgreiðslu meðal annarra gjaldskrár vegna sorphirðu, gjaldskrá fráveitu Dalvíkurbyggðar og gjaldskrá vatnsveitu Dalvíkur og voru þær samþykktar samhljóða.

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgir tillaga að álagningu fasteignaskatts og lóðarleigu fyrir árið 2014 sem hér segir:
Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis: A-skattflokkur
Fasteignaskattur A 0,49% af fasteignamati húss og lóðar (var 0,47%).
Fasteignagjöld stofnana: B-skattflokkur
Fasteignaskattur B 1,32% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt).
Fasteignagjöld atvinnuhúsnæðis: C-skattflokkur
Fasteignaskattur C 1,65% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt
Lóðarleiga
Lóðarleiga íbúðahúsalóða 1,28% af fasteignamati lóðar (var 1,50%).
Lóðarleiga atvinnulóða 2,90 % af fasteignamati lóðar (óbreytt).
Lóðarleiga ræktarlands 3,00% af fasteignamati lóðar (óbreytt).

Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda
Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu talsins og eru gjöldin innheimt frá 5. febrúar til 5. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga.

Til máls tók:
Svanfríður Inga Jónasdóttir.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda tillögu, þ.e.  fasteignaskattur A verði 0,49% af fasteignamati húss og lóðar, fasteignaskattur B verði 1,32% af fasteignamati húss og lóðar og fasteignaskattur C verði 1,65% af fasteignamati húss og lóðar, lóðarleiga íbúðahúsaslóða verði 1,28% af fasteignamati lóðar, lóðarleiga atvinnulóða verði 2,9% af fasteignamati lóðar og lóðarleiga ræktarlands verði 3,00% af fasteignamati lóðar. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda tillögu hvað varðar gjalddaga og greiðslu fasteignagjalda, þ.e. gjalddagar fasteignagjalda eru tíu talsins og eru gjöldin innheimt frá 5. febrúar til 5. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga.

3.Fundagerðir stjórnar Dalbæjar 2013, 8. og 9. fundur til kynningar.

Málsnúmer 201303148Vakta málsnúmer

Enginn tók til máls og fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

4.Sveitarstjórn - 253, frá 17.12.2013. Til kynningar.

Málsnúmer 1312005Vakta málsnúmer

Til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:00.

Nefndarmenn
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
  • Jóhann Ólafsson Aðalmaður
  • Svanfríður Inga Jónasdóttir Aðalmaður
  • Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
  • Anna Guðný Karlsdóttir Aðalmaður
  • Óskar Óskarsson Aðalmaður
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.