Menningarráð

43. fundur 31. mars 2014 kl. 09:30 - 12:00 í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson Formaður
  • Þóra Rósa Geirsdóttir Varaformaður
  • Hlín Torfadóttir Aðalmaður
  • Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá

1.Vinnufyrirkomulag safnstjóra Hvols

Málsnúmer 201309033Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdu drög að samkomulagi um breyttan vinnutíma safnstjórans á Byggðasafninu Hvoli. Samkomulagið er á svipuðum nótum og fjallað hefur verið áður um í ráðinu en safnstjóri mun vera í hærra starfshlutfalli maí til okt og lægra nóvember til apríl vegna búsetu og fer vinnan á því tímabili á mestu fram í fjarvinnu.

Menningarráð felur sviðsstjóra að ganga frá samkomulaginu.

2.Ársskýrsla 2013

Málsnúmer 201403181Vakta málsnúmer

Með fundaboði fylgdi ársskýrsla Héraðsskjalasafns Svarfdæla fyrir árið 2013.

Menningarráð þakkir fyrir góða og vel unna skýrslu.

3.Umsóknir í menningarsjóð Dalvíkurbyggðar 2014

Málsnúmer 201403226Vakta málsnúmer

Teknar voru til umfjöllunar og afgreiðslu umsóknir í menningarsjóð Dalvíkurbyggðar vegna verkefna á árinu 2014.
25 umsóknir bárust í sjóðinn, samtals að upphæð um 11.000.000 kr. en úthlutað var að þessu sinni úr sjóðnum 1.800.000 kr.

Eftirfarandi verkefni hlutu styrk úr sjóðnum að þessu sinni:

Umsækjandi Verkefni Úthlutað
Sóknarnefnd Upsasóknar Tónleikahald í tilefni 400 ára árstíð Hallgríms Péturssonar 75.000
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir Sýning á textílverkum á vinnustofu 75.000
Tónlistarfélag Dalvíkur Svarfdælskur mars, málþing 100.000
Menningarfélagið Berg Klassík í Bergi 100.000
Karlakór Dalvíkur Tónleikahald 100.000
Mímiskórinn Tónleikahald 100.000
Menningarfélagið Berg Barnamenningarhátið 150.000
Kvenfélagð Tilraun Styrkur til heimildar- og ljósmyndavinnu við afmælisritið 150.000
Ingibjörg Hjartardóttir Skrif á skáldsögunni Dalalíf 150.000
Guðbjörg Antonsdóttir Gera hluta ritverka Antons Guðlaugssonar tilbúna til útgáfu 150.000
Salka kvennakór Tónleikahald og útgáfa lags og myndbands 200.000
Kór Dalvíkurkirkju Upptaka á íslenskum hátíðarsöng Bjarna Þorsteinssonar 200.000
Edik ehf Sjóslysið 1963, heimildamyndin BROTIÐ 250.000

Fundi slitið - kl. 12:00.

Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson Formaður
  • Þóra Rósa Geirsdóttir Varaformaður
  • Hlín Torfadóttir Aðalmaður
  • Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri Fræðslu- og menningarsviðs