Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Reglur um styrk á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka 2026

Málsnúmer 202512043

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1170. fundur - 11.12.2025

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að reglum um styrk á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka 2026, óbreyttar reglur á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar og meðfylgjandi reglur og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 385. fundur - 16.12.2025

Á 1170. fundi byggðaráðs þann 11. desember sl. var eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að reglum um styrk á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka 2026, óbreyttar reglur á milli ára.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar og meðfylgjandi reglur og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og fyrirliggjandi tillögu að reglum um styrk á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka 2026.